Sjúkraliðar skora á ráðherra

Stjórn Sjúkraliðafélags Íslands lýsir yfir miklum áhyggjum vegna fyrirhugaðs niðurskurðar á heilbrigðisþjónustu landsmanna og skorar á heilbrigðisráðherra að gera allt sem í hans valdi stendur til að koma í veg fyrir frekari niðurskurð.  

Í ályktun sem stjórnin sendi frá sér segir: „Niðurskurður á fjárveitingum til sjúkrahúsa og annarrar heilbrigðisþjónustu skerðir þjónustu við  alla sem þurfa á henni að halda. Niðurskurðurinn veldur stórauknu álagi á starfsfólk, með tilheyrandi eftirmálum; óbætanlegu heilsutjóni, kvíða og óöryggi. Er ekki mál að linni? 

„2007“ kom aldrei til starfsmanna heilbrigðisþjónustunnar. Til þeirra hefur árum saman verið gerð krafa um aðhald, sparnað og niðurskurð sem  orðið hefur verið við af fremsta megni. Afleiðing niðurskurðar undangenginna ára kemur fram í skertri þjónustu við sjúklinga og stórauknu álagi á heimilin. Heilbrigðisþjónusta á vegum sveitarfélaganna stendur ekki lengur undir þeim kröfum sem til hennar eru gerðar vegna sparnaðar og  óviðunandi starfsaðstöðu sem kemur fyrst og síðast niður á þeim sem hennar eiga að njóta. 

Gott heilbrigðiskerfi byggir á störfum velmenntaðs starfsfólks, góðum starfsanda og sameiginlegum metnaði til að gera góða þjónustu betri.  Gott heilbrigðiskerfi er annað og meira en umbúðir.  Gott heilbrigðiskerfi byggist upp á löngum tíma,  það er því mjög alvarlegt þegar slíkri uppbyggingu er stefnt í voða til langs tíma vegna tímabundinna erfiðleika þjóðarinnar.

Sjúkraliðar skora á heilbrigðisráðherra að gera allt sem í hans valdi stendur til að koma í veg fyrir frekari niðurskurð heilbrigðisþjónustunnar. Sjúkraliðar benda á,  að til þess að ná fram frekari sparnaði án skerðingar á þjónustu verði að gæta þess að „rétt fólk sé á réttum stað,, menntun heilbrigðisstarfsmanna og hæfni sé nýtt.  Félagið leggur áherslu á að breytingar verði aðeins framkvæmdar á grundvelli hlutlægs mats valdra einstaklinga sem hafnir eru yfir allan grun um hagsmunagæslu fyrir einstaka hópa eða stéttir.

Félagið varar ráðherra við að  handahófskenndur niðurskurður getur snúist upp í andhverfu sína með stórauknum kostnaði fyrir samfélagið.“ 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert