Klaufagangur sem kostar skattgreiðendur milljarða

„Skortur á upplýsingagjöf Lánasýslunnar og klaufaleg framsetning hennar um útgáfu ríkisskuldabréfa mun kosta skattgreiðendur marga milljarða á næstunni í formi hærri vaxtakostnaðar ríkissjóðs. Ríkissjóður er að borga hæstu vexti á byggðu bóli og það er varla bætandi á þá vaxtabyrði,“ segir Gísli Hauksson, framkvæmdastjóri GAM Management, sem rekur skuldabréfasjóðinn GAMMA og fjárfestir eingöngu í íslenskum ríkisskuldabréfum.

Lánasýslan, sem sér um lántökur yfir hönd ríkissjóðs, tilkynnti í fyrradag að gefa ætti út allt að sextíu milljarða til viðbótar af ríkisskuldabréfum til að afla ríkissjóði tekna. Kom tilkynningin, sérstaklega upphæðin, flatt upp á marga á markaðnum. „Rökstuðningur fyrir aukinni útgáfu nú er að efla sjóðsstöðu ríkissjóðs í Seðlabanka Íslands þrátt fyrir að hún sé mjög rúm eða um 170 milljarðar króna sem er langleiðina upp í endurfjármögnunarþörf ríkisins í ríkisbréfum og ríkisvíxlum á næsta ári. Spurningin sem maður spyr sig er hvort að Seðlabankinn sé á bak við þessar aðgerðir til þess eins að hækka ávöxtunarkröfu á markaði í ljósi þess að stýrivextir bankans gegna engu hlutverki lengur,“ segir Gísli.

„Það er hins vegar ekkert hald í þeirri staðhæfingu Lánasýslunnar að aukin útgáfa ríkisskuldabréfa, það er aukin skuldsetning ríkisins, auki traust manna á nú þegar of skuldsettum ríkissjóði.“

Er einfaldlega að hækka vexti

Fleiri taka undir með Gísla að með þessu sé Seðlabankinn einfaldlega að hækka vexti á markaði. Már Guðmundsson seðlabankastjóri kvartaði meðal annars yfir því á síðasta vaxtaákvörðunardegi að innlánsvextir banka væru komnir of langt frá virkum vöxtum Seðlabankans, sem nú eru 9,5 prósent. Með þessari aðgerð er verið að reyna að soga umframlausafé úr bankakerfinu inn í Seðlabankann.

Þetta er í andstöðu við yfirlýsingar ríkisstjórnar um að vextir hér verða að lækka.

 
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert