Léttari skattbyrði á tekjulága

Gyfli Arnbjörnsson, forseti ASÍ. stækka

Gyfli Arnbjörnsson, forseti ASÍ. mbl.is/RAX

Miðstjórn ASÍ krefst þess að gerðar verði breytingar á fjárlagafrumvarpinu, þar sem staðið verði við fyrirheit um að létta skattbyrði þeirra tekjulægstu og komið verði betur til móts við erfiða greiðslustöðu heimilanna með hækkun barna- og vaxtabóta. Þetta kemur fram í ályktun miðstjórnar.

Þar segir að mikilvægt sé að náið samráð verði haft við verkalýðshreyfinguna um nauðsynlegar skattkerfisbreytingar. Ennfremur ítreki miðstjórnin mikilvægi þess að þegar í stað verði ráðist í framkvæmdir í samstarfi við lífeyrissjóðina til að efla atvinnu og hagvöxt. 

Ályktunin er svohljóðandi:

„Miðstjórn ASÍ lýsir yfir áhyggjum sínum af nýframlögðu fjárlagafrumvarpi. Aldrei áður hefur þjóðin staðið frammi fyrir eins erfiðum ákvörðunum eins og fram komi í þessu frumvarpi. Ljóst má vera að það mun hafa áhrif á hag allra, með samdrætti í þjónustu hins opinbera og auknum álögum á almenning. Þessi erfiða staða hefur verið þekkt allt frá því snemma á árinu.

Alþýðusambandið hefur því lagt áherslu á að óhjákvæmilegum byrðum efnahagshrunsins verði dreift með eins sanngjörnum hætti og kostur er.
ASÍ hefur lagt áherslu á að verja stöðu skuldsettra heimila, unga barnafólksins og þeirra tekjulægri. Í síðustu kjarasamningum samdi ASÍ við þáverandi ríkisstjórn um hækkun barna- og vaxtabóta á árunum 2008 og 2009 og hækkun skattleysismarka á árunum 2009 til 2011. Þá beitti sameinuð verkalýðshreyfing sér fyrir því við gerð stöðugleikasáttmálans að viðkvæmustu þáttum velferðar-, heilbrigðis- og menntakerfisins yrði hlíft sem kostur væri og settar voru skorður fyrir hækkun skatta. Jafnframt sannmæltust aðilar stöðugleikasáttmálans um að gera átak í að efla framkvæmdir með því að ríkið fengi lífeyrissjóðina til samstarfs um stór fjárfestingarverkefni.

Ríkisstjórnin hefur staðið við þau fyrirheit að verja eins og kostur þá þætti samfélagsþjónustunnar sem samið var um. Því miður virðist ríkisstjórnin ekki ætla að standa við fyrirheit fyrri ríkisstjórna um að létta skattbyrði lágtekjufólks. Þá virðist ríkisstjórnin lítið vera að gera til að auka atvinnu með því að ráðast í stórframkvæmdir í samstarfi við lífeyrissjóðina. Verði ekkert af því er ljóst að þriðjungs niðurskurður á framkvæmdafé er með öllu óásættanlegur.

Miðstjórn ASÍ krefst þess að gerðar verði breytingar á fjárlagafrumvarpinu, þar sem staðið verði við fyrirheit um að létta skattbyrði þeirra tekjulægstu og komið verði betur til móts við erfiða greiðslustöðu heimilanna með hækkun barna- og vaxtabóta.  Mikilvægt er að náið samráð verði haft við verkalýðshreyfinguna um nauðsynlegar skattkerfisbreytingar. Ennfremur ítrekar miðstjórnin mikilvægi þess að þegar í stað verði ráðist í framkvæmdir í samstarfi við lífeyrissjóðina til að efla atvinnu og hagvöxt.“


  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Innlent »

Kristmundur Axel Kristmundsson söng og dansaði með Bláum ópal í Hörpu í gær.

„Ég hef sjaldan verið jafnglaður“

Í gær, 23:53 „Við í Bláum ópal erum rosalega sáttir og þakklátir fyrir allan stuðninginn, þvílík snilld,“ segir Kristmundur Axel Kristmundsson, einn fjórmenninganna í Bláum ópal. Í bréfi sem hann sendi mbl.is eru endalausir broskarlar :-) enda segir Kristmundur Axel: „Ég hef sjaldan verið jafn glaður og bjartsýnn á lífið eins og núna.“ Meira »
Ýmsar verur klífa nú Hallgrímskirkju í magnaðri ljósasýningu.

Böðuð ljósi og litum

Í gær, 20:52 Hallgrímskirkja verður böðuð mögnuðum ljósum og litum á sífelldri hreyfingu til miðnættis en gjörningurinn er hluti af dagskrá Vetrarhátíðar sem lýkur í kvöld. Höfundur ljósasýningarinnar er Marcos Zotes. Meira »

Meirihluti vill Ólaf Ragnar áfram

Forsetahjónin Ólafur Ragnar Grímsson og Dorrit Moussaieff.
Í gær, 20:10 54% Íslendinga vilja að Ólafur Ragnar Grímsson gefi aftur kost á sér sem forseti landsins. Þetta sýnir ný könnun sem sagt var frá í fréttum Stöðvar tvö í kvöld. Meira »

„Okkar dyr hafa alltaf staðið opnar“

Þór Saari og Margrét Tryggvadóttir, þingmenn Hreyfingarinnar, eru meðal þeirra sem stofna Breiðfylkinguna.
Í gær, 18:57 „Mér finnst að það ætti að íhuga mjög vandlega. Okkar dyr hafa alltaf staðið opnar,“ segir Margrét Tryggvadóttir, þingmaður Hreyfingarinnar, eftir fyrri stofnfund nýju hreyfingarinnar sem gengur undir vinnuheitinu Breiðfylkingin. Hún var spurð að því hvort ekki kæmi til greina að nýju stjórnmálaöflin sem fram hafa komið að undanförnu gætu boðið fram saman. Meira »

Blár ópal fékk flest atkvæði

Kristmundur Axel Kristmundsson, syngur með Bláum ópal í Hörpu í gærkvöldi.
Í gær, 18:16 Lagið Stattu upp í flutningi strákasveitarinnar Blás ópals fékk flest atkvæði í símakosningu Söngvakeppni Sjónvarpsins í gærkvöldi. Lagið fékk 700 fleiri atkvæði en lagið sem vann, Mundu eftir mér. Meira »

Hundrað þúsund meira í bensínskatt

Í gær, 19:04 Venjuleg fjölskylda greiðir ríkinu hundrað þúsund krónum meira á ári í bensínskatta nú en fyrir fjórum árum. Sá hluti kaupverðsins sem olíufélögin fá til sín hefur hækkað um 87% á sama tíma. Þetta kom fram í fréttum RÚV í kvöld. Meira »

„Þjóðin valdi okkur“

Blár Ópal í Hörpu í gær. Hljómsveitina skipa þeir Franz Ploder Ottósson, Pétur Finnbogason, Agnar ...
Í gær, 18:31 „Þjóðin valdi okkur, það er mjög gaman að vita af öllum þessum stuðningi almennings,“ sagði Franz Ploder Ottósson, einn fjórmenninganna í Bláum ópal, eftir að fréttir bárust um að lagið þeirra, Stattu upp, hefði fengið flest atkvæði í símakosningunni í Söngvakeppni Sjónvarpsins í gær. Meira »

Gæslan bíður eftir skýrslu

Þór á siglingu.
Í gær, 17:56 Sérfræðingar á vegum Rolls Royce reyna nú að finna orsök bilunar í nýju varðskipi Landhelgisgæslu Íslands sem kom til hafnar í Bergen í Noregi sl. miðvikudagskvöld. Meira »

Vilja nýtt kúakyn til Íslands

Arnar Bjarni Eiríksson, sem rekur eitt stærsta kúabú landsins í Gunnbjarnarholti í Skeiða- og Gnúpverjahreppi.
Í gær, 17:49 Bændurnir í Gunnbjarnarholti og á Skáldabúðum vilja flytja inn nýtt kúakyn til landsins sem allra fyrst. Arnar Bjarni Eiríksson, sem rekur bæði búin ásamt konu sinni Berglindi Bjarnadóttur, segir nýtt kúakyn vera forsendu þess að kúabændur geti þróað mjólkurframleiðslu sína. Meira »

Hundur fastur í neti

Hundur af border collie-kyni.
Í gær, 17:13 Lögreglan fékk í morgun tilkynningu um hund sem var fastur í netadræsum við Ægisgarð. Lögregla og tækjabíll frá slökkviliði fór á vettvang. Búið var að bjarga hundinum úr netunum og var hann frekar þjakaður en glaður björguninni. Meira »

Ók á ljósastaur

Í gær, 17:29 Umferðaróhapp varð á Laugarnesvegi um kl. 14 í dag. Lögreglan fór á staðinn en ökumaður bifreiðarinnar hafði ekið á ljósastaur. Enginn slasaðist en bíllinn er skemmdur og óökuhæfur. Var hann fjarlægður af slysstað með kranabifreið. Meira »

Hjartað í tónlist en höfuðið í lækningum

Magni Ásgeirsson söng lag Sveins Rúnar, Hugarró, af mikilli innlifun.
Í gær, 16:12 Síðustu vikurnar hefur lagahöfundurinn Sveinn Rúnar Sigurðsson, sem átti tvö lög í úrslitakeppni Söngvakeppni sjónvarpsins í gærkvöldi, starfað við lækningar á Heilsugæslunni í Árbæ á daginn og sinnt undirbúningi Evróvisjón á kvöldin. Meira »

Mikið annríki á Læknavaktinni

Í gær, 15:33 Mikið annríki hefur ríkt á Læknavaktinni um helgina, og nánast stöðugur straumur fólks. Sökum þessa hefur biðtími lengst og kalla þurfti út lækna bæði í gær og í dag. Upplýsingar um hvað helst er að hrjá landann liggja þó ekki fyrir. Meira »

Kjörin formaður Sambands ungra framsóknarmanna

Ásta Hlín Magnúsdóttir
Í gær, 15:18 Ásta Hlín Magnúsdóttir var í dag kjörin nýr formaður Sambands ungra framsóknarmanna. Ásta Hlín fékk 32 atkvæði eða 53%. Mótframbjóðandi hennar, Ragnar Stefán Rögnvaldsson, fékk 28 atkvæði eða 47%. Meira »

Gæði röntgenmynda margfaldast

Lesið úr röntgenmyndum á Landspítalanum í Fossvogi. Mynd úr safni.
Í gær, 15:06 Tekinn hefur verið í notkun stafrænn búnaður til framköllunar á röntgenmyndum á Heilbrigðisstofnun Vesturlands á Hvammstanga. Þessi nýju tæki koma í stað gamalla tækja sem voru úr sér gengin og nær ónýt. Meira »

Nálgast 30.000 undirskriftir

Skorað er á forsetann að gefa áfram kost á sér til embættis.
Í gær, 15:19 Undirskriftum fjölgar enn á vefsíðunni Áskorun til forseta þar sem skorað er á Ólaf Ragnar Grímsson, forseta Íslands, að gefa áfram kost á sér til embættis í komandi forsetakosningum. Meira »

Bæta við strætóferðum á Suðurlandi

Mjóddin er upphafs- og endastaður Suðurlandsstrætósins.
Í gær, 15:10 Frá og með deginum í dag verða gerðar nokkrar breytingar á akstri Strætó bs. á Suðurlandi. M.a. verður bætt við hádegisferð frá Reykjavík á Selfoss og til baka til Reykjavíkur, tekinn upp akstur í Reykholt og bætt við ferð frá Vík til Hafnar á þriðjudögum. Meira »

Nefbrotinn eftir árás

Maðurinn var fluttur á slysadeild með sjúkrabíl.
Í gær, 15:04 Karlmaður var fluttur með sjúkrabifreið á slysadeild Landspítala snemma í morgun eftir líkamsárás í miðborg Reykjavíkur. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu sagðist maðurinn hafa orðið fyrir árás tveggja manna sem hann kunni ekki deili á, ekki hefur tekist að hafa uppi á þeim. Maðurinn er talinn nefbrotinn. Meira »

Innlend málefni

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Swarovski skartgripir ÚTSALA
Glæsilegar kristalsljósakrónur, veggljós, glös, postulín, styttur og Swarovski s...
Gisting á höfuðborgarsvæðinu
Erum með laus herbergi. Tilboðsverð. Sjá myndir wwww.lily.is. Gistiheimilið Li...
Tækifæri Fjárfesting
Lítið fyrirtæki með mjög sterkt vöru úrval og merki leitar að - Láni/Fjárfesting...
KLIPPING - dömu og herra - 3.000 kr.
VERÐDÆMI virka daga, stutt hár: Lagning 2.400, blástur 2.800, perm. 5.900, litun...
 
Sölumaður óskast
Sölu/markaðsstörf
Sölumaður óskast til starfa í húsgag...
Til leigu
Til leigu
Til leigu er 75 m² skrifstofuh...
15087 leiguhúsnæði fyrir vínbúð átvr
Tilboð - útboð
15087 - Leiguhúsnæði f...
Bifreiðauppboð
Nauðungarsala
Uppboð Eftirtaldar bifreiðir ver...