Aldrei fleiri stúdentar
Alls brautskráðust 5536 nemendur af framhaldsskólastigi með 6150 próf skólaárið 2007-2008. Þetta er fjölgun um 482 nemendur frá fyrra ári, eða 9,5%.
Hagstofan segir, að aldrei áður hafi svo margir nemendur útskrifast af framhaldsskólastigi á einu skólaári og ástæðan sé m.a. sú að stórir árgangar séu að fara í gegnum framhaldsskólann. Konur voru nokkru fleiri en karlar meðal brautskráðra eða 53,3% nemenda.
Alls útskrifuðust 2810 stúdentar úr 32 skólum skólaárið 2007-2008, 251 fleiri en skólaárið áður sem er 9,8% fjölgun. Ekki hafa áður útskrifast svo margir stúdentar frá íslenskum skólum á einu skólaári.
Körlum meðal nýstúdenta fjölgaði mun meira en konum, eða um 144 (14,6%) en konum fjölgaði um 107 (6,8%) frá fyrra skólaári. Enn ljúka þó miklu fleiri konur en karlar stúdentsprófi. Skólaárið 2007-2008 luku 1677 konur stúdentsprófi, 71,3% af fjölda tvítugra það ár en 1133 karlar, 45,3% af fjölda tvítugra.
Brautskráningar úr starfsnámi á framhaldsskólastigi voru 3165 og hafa ekki verið fleiri á einu skólaári. Brautskráðir nemendur með sveinspróf voru 678. Sveinum fjölgaði um 14 frá fyrra ári (2,1%) og eru karlar rúmlega þrír af hverjum fjórum sem ljúka sveinsprófi (76,7%) en konum fjölgaði um fimmtung (21,5%) meðal sveina frá fyrra ári. Þá voru 878 brautskráningar með ýmiss konar starfsréttindi á framhaldsskólastigi. Brautskráðir iðnmeistarar voru 178 og hafa ekki áður verið fleiri.
Innlent »
Föstudagur, 25.5.2012
- Segir stuðning við Kanadadollar
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
Svipaðar fréttir
- Föstudagur, 8. október 2010, Innlent Aldrei fleiri brautskráðir
- Fimmtudagur, 8. október 2009, Innlent Metfjöldi útskrifaðist úr háskólum
- Mánudagur, 3. nóvember 2008, Innlent Aldrei fleiri útskrifaðir úr háskóla
- Fimmtudagur, 25. september 2008, Innlent Aldrei fleiri að læra ensku
- Fimmtudagur, 19. febrúar 2009, Innlent Aldrei fleiri í námi
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“



































