12 túnfiskveiðiskip utan landhelginnar

Túnfiskveiðibátur í Reykjavíkurhöfn.
Túnfiskveiðibátur í Reykjavíkurhöfn. mbl.is/Kristinn

Tólf japönsk túnfiskveiðiskip sáust í gær að veiðum rétt utan íslensku efnahagslögsögunnar. Ekki eru leyfðar túnfiskveiðar innan íslensku lögsögunnar en ákveðið var að  veiðiheimildir Íslands fyrir árið 2009 úr stofni Austur-Atlantshafs bláuggatúnfisks yrðu geymdar og fluttar óskertar til ársins 2011.

Til skipanna sást í eftirlits- og gæsluflugi Landhelgisgæslunnar á TF-Sif,  sem farið var í gærkvöldi og nótt. Skipin voru á svæði frá 17. til 25 breiddargráðu. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert