Eldur í rúllubindivél í Eyjafirði

Unnið með rúllubindivél.
Unnið með rúllubindivél.

Eldur kom upp í rúllubindivél á bænum Holtsseli í Eyjafirði skömmu fyrir klukkan átta í kvöld. Að sögn lögreglunnar á Akureyri var verið að rúllubinda á bænum þegar eldur kviknaði í bindivélinni.

Slökkviliðið kom umsvifalaust á staðinn og hafði ráðið niðurlögum eldsins á innan við 10 mínútur. Eldurinn hafði breiðst út í hálm á túninu og þurfi einnig að slökkvi í því. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert