Hafa allir gefið sig fram

mbl.is/Brynjar Gauti

Allir karlmennirnir þrír, sem lögreglan á Suðurnesjum lýsti eftir í dag í tengslum við rannsókn á hugsanlegu mansalsmáli hafa allir gefið sig fram við lögreglu.

Lögreglan lýsti eftir þremur Litháum, þar af tveimur nafngreindum, og jafnframt birti hún myndir af tveimur þeirra. Um er að ræða menn, sem taldir eru tengjast rannsókn á komu litháískrar konu hingað til lands fyrir rúmri viku en lögreglu grunar að hún hafi verið fórnarlamb mansals og átt að stunda vændi hér á landi.

Lögreglan lýsti eftir konunni í vikunni og kom hún í leitirnar seint á fimmtudagskvöld. Hún er nú undir verndarvæng lögreglunnar.  

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert