Fordæma skemmdarverk
Ríkisstjórnin fjallaði á fundi sínum í morgun m.a. um aðfarir og skemmdarverk sem hafa beinst að heimilum fólks að undanförnu og samþykkti yfirlýsingu þar sem slíkar aðfarir eru fordæmdar og hvatt til samstöðu um að stöðva þær.
Jóhanna Sigurðardóttur, forsætisráðherra, sagði eftir ríkisstjórnarfundinn, að gera verði skýran greinarmun á eðlilegum mótmælum og aðgerðum af þessu tagi. Nefndi hún m.a. aðsúg sem gerður var að heimili Rögnu Árnadóttur, dómsmálaráðherra, og skemmdarverk á bíl Rannveigar Rist, forstjóra Alcan á Íslandi en Rannveig brenndist í andliti af sterkum lakkleysi, sem þar var beitt.
Í yfirlýsingunni segir m.a. að rétturinn til að mótmæla miðist við að mótmælin fari skipulega fram, séu friðsamleg og rúmist innan allsherjarreglu í þjóðfélaginu.
Að undanförnu hafi verið framin skemmdarverk á heimilum einstaklinga í skjóli nætur og einnig hafi verið gerð aðför að einkaheimilum þar sem tilgangurinn sé sá að ógna viðkomandi með aðsúgi og háreisti. Milli slíks athæfis annars vegar og skipulegra mótmæla hins vegar verði að draga skýra markalínu.
„Þrýstingur, ógnanir og hótanir við heimili fólks til að hafa áhrif á ákvarðanir er óviðunandi í réttarríki. Aðfarir að heimlum, sem vekja ótta hjá börnum og öðru heimilisfólki þeirra sem þær beinast að, eiga aldrei rétt á sér. Ríkisstjórnin fordæmir skilyrðislaust og með skýrum hætti það ofbeldi, sem felst í því að ráðist sé að friðhelgi einkalífs og heimila. Ríkisstjórnin hvetur til samstöðu um að stöðva framangreinda óheillaþróun," segir í samþykktinni.
Bloggað um fréttina
-
Steini Thorst Já sælllllllll........... -
Skuldlaus Reiði er afleidd tilfinning -
Alexander Kristófer Gústafsson Elítan orðin hrædd? -
Jóhannes Guðnason Sammála Ríkisstjórninni,að fordæma skemmdarverk að heimilum fólks.!!!! -
Jóhann Elíasson ÉG FORDÆMI LANDRÁÐ RÍKISSTJÓRNAR ÍSLANDS FRÁ ÞVÍ AÐ HÚN TÓK ... -
Kjarri thaiiceland Spurning -
Jakobína Ingunn Ólafsdóttir Ríkisstjórnin fremur skemmdarverk á einkaheimilum
Innlent »
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
Svipaðar fréttir
- Föstudagur, 11. desember 2009, Innlent Skemmdarverk unnin í Fossvogi
- Miðvikudagur, 17. mars 2010, Innlent Harma máttleysi stjórnvalda
- Laugardagur, 9. maí 2009, Innlent Neikvæðar horfur hjá Landsvirkjun að mati S&P
- Sunnudagur, 26. apríl 2009, Innlent Ræningja enn leitað
- Sunnudagur, 26. apríl 2009, Innlent Vopnað rán í Mávanesi
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli

































