Gæslan fylgist með olíuskipi

Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar hefur í dag fylgst með siglingu olíuskipsins ZOYMA  vestur fyrir Ísland en skipið er á leið frá Bandaríkjunum til Rússlands.

Skipið valdi að sigla vestur fyrir land vegna lægða sem ganga yfir suður af landinu. Athygli vakti þegar skipið sigldi lengra í norður en venjan er á þessari siglingaleið en ástæðan var sú að skipið vildi halda ákveðinni fjarlægð frá fiskiskipum á svæðinu. Þetta kemur fram í tilkynningunni frá Gæslunni nú undir kvöld. 

Eftirlitsflugvél Landhelgisgæslunnar, TF-Sif, var í gæsluflugi vestan við landið og var hún beðin um að kanna svæðið nánar. Sá hún að skipið hafði nýlega farið hjá borgarísjaka en hafísrönd og stakir ísjakar voru nokkuð norðan við það. Var skipið upplýst um stöðuna og var því bent á að fara varlega.

ZOYMA er 60 þúsund tonna olíuskip, skráð í Grikklandi. Það er 233 metrar að lengd, 42 metrar að breidd og ristir 15 metra. Skipið er ekki með olíu innanborðs en það er á bakaleið eftir að hafa siglt með olíu frá Rússlandi til Bandaríkjanna fyrr í þessum mánuði.



mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert