„Kreppa - taka tvö“ framundan

Vilmundur Jósefsson.
Vilmundur Jósefsson. mbl.is/Ómar

Tæp vika er til stefnu, til að bjarga lífi stöðugleikasáttmálans og það er mikil hætta á því að hann springi. Þetta kom skýrt fram á fundi Samtaka atvinnulífsins á Hótel Loftleiðum í morgun. ,,Þessi stöðugleikasáttmáli hangir eingöngu á óskhyggjunni,” sagði Vilmundur Jósefsson, formaður SA.

Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA, lagði í ræðu sinni ofuráherslu á að fjárfestingar í framkvæmdum og atvinnulífi, ekki síst á Suðurnesjum, fái að komast í gang. Þá sagði hann atvinnulífið æpa á vaxtalækkanir. Auk þess hafi skattahækkanir sem ríkisstjórnin hafi kynnt í fjárlagafrumvarpinu gengið mun lengra en talað hafi verið um í stöðugleikasáttmálanum. Hann sagði ákvörðun Svandísar Svavarsdóttur umhverfisráðherra, vegna umhverfismats á Suðvesturlínum, hafa sett öll áform um framkvæmdir á Suðurnesjum á bið. Með því væri allt að þriðjungur fjárfestinga í atvinnulífinu á næsta ári í uppnámi og 3-4% af landsframleiðslunni ,,á útleið" eins og hann orðaði það. Þar að auki fordæmdi hann áformin um auðlinda- og orkuskatta.

„Það er mjög auðvelt að sjá fram á það, að ef fjárfestingarnar gangi ekki fram á næsta ári, þá munum við ekki horfa á 2% samdrátt heldur 6% samdrátt eða meira. Við erum að tala um kreppu - töku tvö," sagði Vilhjálmur. Hann sagði engum hugnast sá veruleiki. En þetta væri nokkuð sem menn mættu ekki láta yfir sig ganga. Hættan á því að slitni upp úr kjarasamningum sé því mjög raunveruleg, þótt SA séu stundum ásökuð um að öskra sífellt um að slíta samningum, en standa aldrei við stóru orðin.

„Við teljum að miklu máli hafi skipt að vera með góð samskipti við okkar viðsemjendur. Við getum ekki kvartað undan verkalýðshreyfingunni. ASÍ hefur sýnt íslensku atvinnulífi mikinn skilning í þessum erfiðleikum," sagði Vilhjálmur. ,,Það er þess vegna erfitt að standa frammi fyrir því að ríkisstjórnin sé að skapa þau skilyrði að við þurfum að rjúfa þá samninga sem á milli okkar eru."

Ljósi punkturinn sem Vilhjálmur lýsti var endurreisn bankanna í samstarfi við kröfuhafa þeirra. Það sagði hann að væri að fara á besta veg sem hægt hefði verið að hugsa sér. „Það þarf ekkert allt að fara til andskotans á Íslandi. Við getum komist út úr þessari kreppu ef við bara viljum það," sagði Vilhjálmur.

„Stöðugleikasáttmálinn frá því í júní er ónýtur. Ríkisstjórnin er búin að svíkja hann og hún er búin að rífa hann. Allra síst megum við, sem samtök, fara að ljúga að sjálfum okkur,” sagði Víglundur Þorsteinsson, stjórnarformaður BM Vallár, á fundinum, eftir framsögur þeirra Vilmundar og Vilhjálms.

Vilhjálmur Egilsson framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins.
Vilhjálmur Egilsson framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins. Árni Sæberg
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert