Innbrot í tvo bíla í Reykjavík

mbl.is/Júlíus

Rólegt hefur verið hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í dag. Þó var brotist inn í tvo bíla í austurborginni í dag. Annan í Kringlunni en hinn í Fossvogi. Einn maður var handtekinn vegna málsins og er hann nú vistaður í fangageymslum.

Árekstur varð við afleggjarann að Sælingsdal í Dölum í dag. Einn maður slasaðist, þó ekki alvarlega, í árekstrinum og var fluttur til Reykjavíkur. Bílarnir sem rákust á voru mikið skemmdir.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka