Slæmar aðstæður í efnahagslífi

Aðstæður í efnahagslífinu eru nú slæmar eða mjög slæmar að mati 95% stjórnenda í stærstu fyrirtækjum landsins. Er þetta meðal niðurstaðna í ársfjórðungslegrar könnunar Capacent Gallup á stöðu og horfum hjá 500 stærstu fyrirtækja landsins, en könnunin var gerð í septembermánuði.

Að sögn Samtaka atvinnulífsins er mat stjórnenda á aðstæðum í efnahagslífinu að þessu sinni ámóta slæmt og fram hefur komið í hliðstæðum könnunum undanfarið ár. Könnunin bendir til að á næstu sex mánuðum muni störfum í atvinnulífinu fækka enn frekar.

Mikill samdráttur fjárfestingar í atvinnulífinu endurspeglast með skýrum hætti í könnuninni. Segir SA, að útlit sé  fyrir að fjárfesting muni dragast saman um 20% að nafnvirði á næsta ári eða um 26% að raunvirði, en í þjóðhagsáætlun fjármálaráðuneytisins sé hins vegar spáð rösklega 10% magnaukningu á næsta ári.

Um fjórðungur stjórnenda býst við að aðstæður eftir hálft ár verði nokkuð betri en þær eru nú. Þriðjungur þeirra telur engu að síður að aðstæður verði verri og í heild sé því ekki vænst umbóta á næstu sex mánuðum.  

 Þegar stjórnendur reyna hins vegar að skyggnast ár fram í tímann, eykst bjartsýnin. Telja um 62% þeirra að aðstæður verði þá nokkuð betri en aðeins um 22% að þær verði verri. Samtök atvinnulífsins segir, að raunar sé þetta áþekk niðurstaða og kom fram í samsvarandi könnunum fyrir 6 og 12 mánuðum síðan og lýsi e.t.v því að stjórnendur haldi í von um að aðstæður fari batnandi að ári liðnu þótt skýr merki um það skorti á næstu mánuðum.

Vefur Samtaka atvinnlífsins

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert