Stefnt á rafbílavæðingu Reykjavíkur

Reva rafbíll. Gangi áætlun Reykjavíkurborgar eftir á þeim og fleiri …
Reva rafbíll. Gangi áætlun Reykjavíkurborgar eftir á þeim og fleiri rafbílum eftir að fjölga verulega á götum borgarinnar.

Starfshópur sem skal gera áætlun um rafbílavæðingu og kanna aðstæður til að innleiða hleðslukerfi í Reykjavík hefur nú verið stofnaður. Borgin stefnir að því að verða forystuborg á heimsvísu í rafbílavæðingu. Hópurinn á að skila skýrslu ásamt tillögum í mars 2010.

Umhverfis- og samgönguráð stofnaði í dag starfshóp sem á að finna leiðir til að ná því markmiði að verða forystuborg á heimsvísu í rafbílavæðinu eins fljótt og auðið er. Talið er að í Reykjavík séu kjöraðstæður eru til að gera borgarbúum fært að reka rafbíla í borginni á hagkvæman hátt.

Mun starfshópurinn meðal annars vinna að áætlun um rafbílavæðingu og kanna aðstæður til að innleiða hleðslukerfi í borginni.

Kosturinn við raforkuna sem knýr bílana er að hún er innlend, endurnýjanleg, ódýr og einnig mun draga verulega úr loftmengun og losun gróðurhúslofttegunda. Samgöngur er helsta uppspretta losunar gróðurhúsalofttegunda í borginni og hefur mikil áhrif á loftgæði.

Aðstæður þurfa vera með því móti að auðvelt verði að hlaða bílana hvort sem er heima fyrir, í vinnunni eða annars staðar í borginni.

Lagt er til að starfshópurinn verði skipaður fulltrúnum meiri- og minnihluta ráðsins. sérfræðingar af Umhverfis- og samgöngusviði, háskólastofnun og fulltrúa Orkuveita Reykjavíkur munu eiga aðild að starfshópnum. Jafnframt verður samgönguyfirvöldum boðin þátttaka.

Hópurinn á að skila skýrslu ásamt tillögum í mars 2010.


mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert