Engin jólakort í ár

Ríkisstjórnin hefur ákveðið að senda ekki jólakort innanlands fyrir þessi jól í nafni einstakra ráðuneyta. Þess í stað verður andvirði kortanna og sendingarkostnaðar, um 4,5 milljónir króna, afhent 9 hjálparsamtökum.

Mæðrastyrksnefndir í Reykjavík, Akureyri, Hafnarfirði og Kópavogi, Hjálparstarf kirkjunnar, Samhjálp, Hjálpræðisherinn, Rauðikross Íslands og Fjölskylduhjálpin fá hvert í sinn hlut 500.000 krónur, að því er segir í tilkynningu frá forsætisráðuneytinu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert