Margir Íslendingar til Noregs

Reuters

Íbúar Noregs reyndust vera alls 4.842.700  1, október síðastliðinn. Alls fluttust 18.750 manns til landsins á þriðja ársfjórðungi 2009 og 8.350 á brott.  Um 1300 Íslendingar og álíka margir Pólverjar fluttu til Noregs á ársfjórðungnum, segir í skýrslu frá norsku Hagstofunni.

Aðfluttum Pólverjum hefur fækkað mjög en tala Íslendinganna margfaldast borið saman við 2008. Íslendingar voru sjötti fjölmennasti hópurinn sem kom til landsins.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert