Frumvarp um réttindi barna væntanlegt
Frumvarp til laga um samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins (Barnasáttmálann) liggur nú fyrir í samræmi við þingsályktun sem samþykkt var á Alþingi 16. mars síðastliðinn. Ragna Árnadóttir dómsmála- og mannréttindaráðherra hefur kynnt frumvarpið fyrir ríkisstjórn og stefnt er að framlagningu þess á Alþingi innan tíðar.
Til að hægt sé að falla frá yfirlýsingu sem gerð var við fullgildingu samningsins hér á landi hefur ráðherra sett á fót starfshóp til að koma með tillögur að fyrirkomulagi á vistun ungra fanga sem væri í samræmi við Barnasáttmálann.
Samningurinn um réttindi barnsins var undirritaður af Íslands hálfu
26. janúar 1990 og fullgiltur 28. október 1992. Hann öðlaðist gildi
gagnvart Íslandi 27. nóvember 1992. Við fullgildingu samningsins var
litið svo á að íslensk löggjöf væri í samræmi við ákvæði hans og var
hann því fullgiltur án fyrirvara af hálfu Íslands, en lagðar voru fram
sérstakar yfirlýsingar vegna tveggja ákvæða, önnur varðandi ákvarðanir
um aðskilnað barna og foreldra og hin varðandi aðskilnað ungra fanga
frá fullorðnum.
Ísland hefur nú fallið frá fyrri yfirlýsingunni þar sem gerðar hafa
verið lagabreytingar sem samræmast ákvæðum samningsins. Hin
yfirlýsingin stendur eftir og hefur dómsmála- og mannréttindaráðherra
sett á fót áður nefndan starfshóp, sem í eiga sæti fulltrúar
ráðuneytisins, Barnaverndarstofu og Fangelsismálastofnunar. Hópurinn
hefur það hlutverk að koma með tillögur að fyrirkomulagi um vistun
ungra fanga sem væri í samræmi við Barnasáttmálann svo unnt sé að falla
frá yfirlýsingunni, að því er segir á vef dómsmálaráðuneytisins.
Innlent »
Föstudagur, 25.5.2012
- Segir stuðning við Kanadadollar
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
Svipaðar fréttir
- Miðvikudagur, 9. júní 2010, Innlent Sakhæf börn afpláni á meðferðarheimilum
- Föstudagur, 14. ágúst 2009, Innlent Falið að semja lagafrumvarp um réttindi barna
- Þriðjudagur, 19. janúar 2010, Innlent Þjóðskrá og Fasteignaskrá Íslands sameinuð
- Mánudagur, 25. janúar 2010, Innlent Lára settur ríkissaksóknari
- Fimmtudagur, 14. október 2010, Innlent Vill gera breytingar á barnaverndarlögum
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“



































