25 sóttu um stöðu ráðuneytisstjóra

Alls bárust 25 umsóknir, þar af frá þrettán konum og tólf körlum, um embætti ráðuneytisstjóra í mennta- og menningarmálaráðuneyti en umsóknarfrestur rann út 20. nóvember sl.

Umsækjendur eru:

Anna Kristín Ólafsdóttir, stjórnsýslufræðingur,
Dr. Arnór Guðmundsson, skrifstofustjóri í mennta- og menningarmálaráðuneyti,
Ágúst Hjörtur Ingþórsson, forstöðumaður Rannsóknaþjónustu Háskóla Íslands,
Ásta Magnúsdóttir, skrifstofustjóri hjá EFTA í Brussel,
Belinda Þurý Therault, MA, MBA,
Bjarni Daníelsson, sveitarstjóri Skaftárhrepps,
Dögg Pálsdóttir, hæstaréttarlögmaður,
Dr. Eiríkur Hilmarsson, framkvæmdastjóri Vísindagarða HÍ,
Gísli Þór Magnússon, skrifstofustjóri í mennta- og menningarmálaráðuneyti,
Guðlaug Úlfarsdóttir, kennari,
Dr. Guðmundur K. Birgisson, lektor á menntasviði Háskóla Íslands,
Guðrún Gísladóttir, framkvæmdastjóri Heyrnar- og talmeinastöðvar Íslands,
Halldór Árnason, skrifstofustjóri í forsætisráðuneyti,
Helga Erla Þórisdóttir, aðallögfræðingur Lyfjastofnunar,
Karitas H. Gunnarsdóttir, skrifstofustjóri í mennta- og menningarmálaráðuneyti,
Lárus H. Bjarnason, rektor Menntaskólans við Hamrahlíð,
Dr. Rósa Gunnarsdóttir, sérfræðingur í mennta- og menningarmálaráðuneyti,
Sigurbjörg Jóhannesdóttir, sérfræðingur í mennta- og menningarmálaráðuneyti,
Dr. Sigurbjörg Sigurgeirsdóttir, sérfræðingur,
Sigurður Hróarsson, fyrrverandi leikhússtjóri,
Sigurjón Mýrdal, deildarstjóri í mennta- og menningarmálaráðuneyti,
Sólrún Halldórsdóttir, framkvæmda- og fjármálastjóri,
Dr. Stefán Baldursson, skrifstofustjóri í mennta- og menningarmálaráðuneyti,
Þórhallur Vilhjálmsson, skrifstofustjóri í mennta- og menningarmálaráðuneyti Þórunn J. Hafstein, settur ráðuneytisstjóri í dómsmála- og mannréttindaráðuneyti.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert