Fagna aðgerðum landbúnaðarráðherra

Samtök ungra bænda vilja að stjórnvöld sendi frá sér skýr …
Samtök ungra bænda vilja að stjórnvöld sendi frá sér skýr skilaboð um að öflugur landbúnaður verði áfram stundaður á Íslandi. Mynd úr safni. mbl.is/Jim Smart

Stjórn Samtaka Ungra bænda, fagnar því að sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra hafi skipað vinnuhóp til að fjalla um breytingar sem verði á eignarhaldi bújarðar vegna bankahrunsins. Þá fagna samtökin að vilji sé fyrir hendi til að tryggja að jarðir fari ekki úr landbúnaðarnotkun og leitast sé við að tryggja áframhaldandi búsetur á þeim.

Fram kemur í tilkynningu að skynsöm nýting landbúnaðarlands til búvöruframleiðslu og traust búseta sé forsenda fyrir því að hægt sé að nota auðlindir landsins til að tryggja fæðuöryggi landsins og hægt sé að halda uppi lágmarks framleiðslustigi af landbúnaðarafurðum. Helstu baráttumál Samtaka ungra bænda séu að horft sé til framtíðar hvað þetta varði og að gefin séu skýr skilaboð um að ætlunin sé að áfram verði stundaður öflugur landbúnaður á Íslandi.  


mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert