Bíllinn alelda þegar slökkviliðið kom

Eldur kom upp í bifreið í Kópavogi í nótt.
Eldur kom upp í bifreið í Kópavogi í nótt. mbl.is/Eyþór

Eldur kviknaði í fólksbíl í Kórahverfinu í Kópavogi á þriðja tímanum í nótt.

Bíllinn stóð í bílastæði við fjölbýlishús og var orðinn alelda þegar slökkvilið mætti á vettvang.

Stefán Kristinsson, varðstjóri hjá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu, segir að slökkviliðið hafi fljótt náð tökum á eldinum. Altjón hafi þó orðið á bifreiðinni.

Upplýsingar um eldsupptök liggja ekki fyrir. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert