Blómsveigur lagður að leiði Jóns

Stúdentar lögðu blómsveig á leiði Jóns Sigurðssonar.
Stúdentar lögðu blómsveig á leiði Jóns Sigurðssonar. mbl.is/Kristinn

Stúdentar lögðu í dag krans að leiði Jóns Sigurðssonar í gamla kirkjugarðinum við Suðurgötu. Um er að ræða hefðbundinn lið á dagskrá stúdentadagsins 1. desember á fullveldisafmæli Íslands. 

Dagskráin í Háskóla Íslands hófst klukkan 10  og klukkan 12 hófst samkoma á Háskólatorgi þar sem Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, ávarpaði meðal annars stúdenta. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert