Mikill snjór í Snæfellsbæ

Allt er á kafi í snjó í Snæfellsbæ. Myndin er …
Allt er á kafi í snjó í Snæfellsbæ. Myndin er af heimasíðu bæjarins.

Mikið snjóaði í Snæfellsbæ um helgina og segir á heimasíðu bæjarins, að menn muni ekki eins mikinn snjó í langan tíma. Bílar voru fastir um allan bæ og þurfti fólk að moka sér leið inn eða út úr húsum sínum.

Snjókoman gladdi hins vegar yngstu kynslóðina sem var dugleg að leika sér úti í snjónum. 

Myndir úr snjónum í Snæfellsbæ

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert