IKEA innkallar barnastóla

Leopard barnastóll frá IKEA
Leopard barnastóll frá IKEA

IKEA biður viðskiptavini sína sem eiga Leopard barnastól að hætta strax að nota stólinn og skila sætinu og grindinni til IKEA. Tekið er á móti stólnum í Skilað og skipt og verður hann að fullu endurgreiddur.

Smellulásar sem festa sætið við grindina eiga það á hættu að brotna sem getur valdið því að sætið dettur niður um grindina. Börn geta orðið fyrir meiðslum á höfði og öðrum líkamshlutum við það að detta og þeim getur stafað köfnunarhætta af lausum smellulásum.

IKEA hefur fengið ellefu tilkynningar vegna brotinna smellulása frá kaupendum í Evrópu. Þar á meðal er eitt tilvik þar sem sæti stólsins datt niður um grindina á meðan barn sat í því. Barnið marðist á fótleggjum. Í öðru tilviki fannst laus smellulás í munni barns en hann var fjarlægður áður en skaði hlaust af.

Ekki hafa borist fleiri tilkynningar um slys eða meiðsl, að því er segir í tilkynningu frá IKEA.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert