„Ekki hægt að segja nei“

Friðbjörn Sigurðsson læknir fékk heldur óvenjulegt símtal á sunndaginn var, þar sem hann var beðinn um að sinna hjálparstarfi á vegum Rauða krossins á Haítí.

„Þetta var erfið spurning. Það hefði náttúrulega verið lang þægilegast að segja bara nei. En ég ræddi þetta við mína fjölskyldu og mína bestu vini, og við komumst að þeirri niðurstöðu að það er ekki hægt að segja nei við svona beiðni,“ segir Friðbjörn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert