Fréttaskýring: Mörg stórmál óleyst á ársafmæli stjórnar

stækka

mbl.is/Ómar

Morgunblaðið Eftir Sigurð Boga Sævarsson

„Staðan eftir þetta eina ár sem ríkisstjórnin hefur setið að völdum er mun vænlegri en ég reiknaði með. En vissulega hafa viðfangsefnin verið stór og tekið bæði á krafta og taugar,“ segir Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra og formaður Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs.

Ríkisstjórn Samfylkingar og VG er eins árs í dag, 1. febrúar. Í alþingiskosningum 25. apríl sl. juku stjórnarflokkarnir þingstyrk sinn, náðu hreinum meirihluta og mynduðu í krafti þess núverandi ríkisstjórn, sem tók við völdum 10. maí á síðasta ári.

 Segir mörg mál í höfn

Steingrímur J. Sigfússon segir að á síðustu misserum hafi ríkisstjórnin þurft að takast á við mörg stór vandamál, til dæmis í ríkisfjármálum. Skuldir heimilanna séu annað stórt óleyst mál og sér þyki bagalegt að geta ekki liðsinnt þar eins og þörf sé á. Mörg stór mál séu hins vegar í höfn, svo sem endurreisn bankanna. Með þokkalega eiginfjárstöðu hafi ríkisvaldið komið þeim af stað sem sé mikilvægt fyrir endurreisnina.

„Ríkisstjórnin mun fljótlega kynna áætlun um opinberar framkvæmdir og útboð,“ sagði Jóhanna Sigurðardóttir þegar hún flutti stefnuræðu sína á Alþingi í febrúar á síðasta ári. „Við vitum að stórir framkvæmdaaðilar bíða hreinlega eftir því að hefjast handa,“ sagði forsætisráðherra við sama tilefni og sagði að gripið yrði til vissra aðgerða til að bregðast við fjárhagsvanda heimila í landinu í virku samráði við hagsmunaaðila. Þá yrði gjaldþrotalögum breytt svo réttarstaða skuldara yrði betri.

 Mikið talað en lítið gert

„Það hefur mikið verið talað en lítið gert og ríkisstjórnin hefur ekki nýtt sér tækifæri,“ segir Sigurður Ingi Jóhannsson, þingmaður Framsóknarflokks. Skuldavandi heimilanna og nauðsyn atvinnuuppbyggingar ætti að vera viðfangsefni dagsins en ríkisstjórnin hefði þess í stað lagt allt kapp á aðildarumsóknina að ESB og lausn Icesave-deilunnar.

„Ríkisstjórnin hefur staðið sig hörmulega og árangurinn er samkvæmt því,“ segir Einar Kr. Guðfinnsson, þingmaður Sjálfstæðisflokks. Hann segir stjórnina hvorki hafa haft kjark né einbeitni til að mæta mikilvægum málum og geti ekki endalaust afsakað sig með skírskotun til fortíðar. Stórmál svo sem Icesave og skuldavandi heimilanna séu óleyst og ljóst sé að fjárlög þessa árs muni ekki standast. Ef að líkum láti verði þau komin í uppnám um mitt ár og mótleikurinn verði þá frekari skattaálögur á almenning og atvinnulíf. Einnig sé ágreiningur innan og milli flokka áberandi.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Greta Salóme og Jónsi í kvöld.

„Ég er í skýjunum“

Í gær, 23:35 „Ég er í skýjunum,“ sagði Greta Salóme Stefánsdóttir, texta- og lagahöfundur lagsins Mundu eftir mér sem verður framlag Íslands í Evróvisjón-keppninni í Aserbaídsjan í maí. Greta sagðist vilja þakka sínum nánustu og samstarfsfélögum, en nú ætlaði hún að njóta kvöldsins og leyfa því að líða. Meira »
Jónsi og Greta Salóme.

„Mjög sérstök tilfinning“

Í gær, 23:12 „Mjög sérstök tilfinning,“ sagði Jón Jósep Snæbjörnsson, Jónsi, eftir að ljóst var að hann færi með Gretu Salóme til Bakú í Aserbaídjan til að keppa fyrir hönd Íslands í Evróvisjón. Jónsi sem tekur þátt í Evróvisjón í annað skipti sagðist ekki alveg hafa náð utan um þá staðreynd enn. Meira »

Jónsi og Greta til Bakú

Jónsi og Greta í Hörpu.
Í gær, 22:29 Mundu eftir mér er framlag Íslands til Evróvisjón-keppninnar í Aserbaídsjan í maí. Íslenska framlagið keppir í fyrri hluta fyrri undanriðils þann 22. maí en aðalkeppnin fer fram 26. maí. Símakosning auk dómnefndar skar úr um hvaða lag var valið. Meira »

Helmingur vill að ákæran verði dregin til baka

Geir H. Haarde fyrir Landsdómi.
Í gær, 19:52 Jafnmargir eru því fylgjandi að ákæra á hendur Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, verði dregin til baka og andvígir því, samkvæmt niðurstöðum úr könnun Stöðvar tvö og Fréttablaðsins sem greint var frá í kvöldfréttum Stöðvar 2. Meira »

Hvessir af suðri seint í kvöld

Á hæstu fjallvegum um landið vestanvert er spáð hríðarveðri fram á nótt.
Í gær, 17:16 Heldur hvessir af suðri í kvöld og hlýnar á landinu, samkvæmt upplýsingum frá veðurfræðingi Vegagerðarinnar. Á hæstu fjallvegum um landið vestanvert er spáð hríðarveðri fram á nótt, en slyddu og rigningu í byggð. Á norðanverðu Snæfellsnesi er spáð byljóttum vindi í nótt og mjög hvössum vindhviðum. Meira »

Úrslitakeppnin hafin í Hörpu

Keppnin fer fram í Hörpu.
Í gær, 20:33 Úrslitakvöld forkeppni Evróvisjón er hafið í Hörpu, en í kvöld kemur í ljós hverjir keppa fyrir hönd Íslands í lokakeppni söngvakeppninnar sem fram fer í Bakú í Aserbaídjan síðar á árinu. Meira »

Fjör á 112-deginum á Húsavík

Börnum og unglingum var boðið í stutta sjóferð á Jóni Kjartanssyni, báti Björgunarsveitarinnar Garðars.
Í gær, 17:35 Víðar var haldið upp á 112-daginn en aðeins í Reykjavík. Þannig lögðu fjölmargir leið sína í björgunarsveitarhúsið Naust á Húsavík þar sem viðamikil dagskrá fór fram. Meira »

Mannréttindi alltaf í fyrsta sæti

Ögmundur Jónasson
Í gær, 16:46 Ögmundur Jónasson, innanríkis- og mannréttindaráðherra Íslands, segir það vel koma til greina að skoða með hvað hætti Ísland geti beint spjótum sínum að mannréttindabrotum í Aserbaídsjan í kjölfar Evróvisjón keppninnar. Meira »

Ekki hika – hringdu til öryggis

Meðal þess sem var í boði, var að læra hvernig á að beita hjartahnoði.
Í gær, 16:46 Gagn og gaman, voru þau orð sem gestir í Smáralind höfðu um 112-daginn sem þar var haldinn í dag. Markmið dagsins var að kynna neyðarnúmerið og þá margvíslegu aðstoð sem almenningur hefur aðgang að í gegnum það. En ekki síður voru viðbragðsaðilar með umfangsmiklar kynningu. Meira »

Enginn flótti af Y-lista

Rannveig Ásgeirsdóttir, fulltrú Y-lista Kópavogsbúa og Ármann Kr. Ólafsson, sjálfstæðisflokki.
Í gær, 16:04 Rannveig Ásgeirsdóttir, bæjarfulltrúi Y-lista í bæjarstjórn Kópavogs, segir það ekki rétt að nokkur fjöldi hafi sagt sig úr Y-lista Kópavogsbúa eftir að listinn myndaði meirihluta með Framsóknarflokknum og Sjálfstæðisflokknum í Kópavogi á fimmtudaginn. Henni er aðeins kunnugt um að einn hafi sagt sig af listanum vegna þessa. Meira »

Möguleikar nýju framboðanna

Í gær, 16:05 Væntanlega mun ýmislegt skýrast á næstunni frekar varðandi stefnur stjórnmálahreyfinganna og hvernig þær ætli sér að skipuleggja starfsemi sína fyrir næstu þingkosningar sem verða í síðasta lagi vorið 2013 eða eftir rúmt ár en gætu skollið á hvenær sem er. Meira »

Iðnaðarmaður ræsti brunaboða

Kleppsspítali
Í gær, 15:57 Lögregla og slökkvilið voru kölluð að Kleppsspítala rétt fyrir hádegið í dag þegar brunaboði og innbrotsboði voru ræstir. Í ljós kom að iðnaðarmaður setti brunaboðann af stað með vinnu sinni og þegar hann reyndi að slökkva á honum ræsti hann óvart innbrotsboðann. Meira »

Búðaþjófur ógnaði starfsmanni

Maðurinn reyndi að stela vörum úr Hagkaup.
Í gær, 15:54 Starfsfólk Hagkaupa í Skeifunni óskaði eftir aðstoð lögreglu höfuðborgarsvæðisins á öðrum tímanum í dag. Þar hafði karlmaður reynt að stela vörum og brást illa við afskiptum öryggisvarðar. Búðaþjófurinn sem ógnaði öryggisverðinum með skærum var handtekinn og bíður skýrslutöku. Meira »

Fangar reyna oft að ná í fíkniefni

Fangi fluttur fyrir dómara.
Í gær, 15:39 Tilvik þess að fangar reyni að nálgast fíkniefni þegar verið er að flytja þá á spítala, fyrir dóm eða til tannlæknis koma reglulega upp. Þetta sagði deildarstjóri á fangelsinu á Litla-Hrauni í hádegisfréttum Ríkisútvarpsins. Því þurfi sífellt að endurskoða fangaflutninga. Meira »

Skjálftahrina við Grímsey

Kort af skjálftunum.
Í gær, 14:48 Jarðskjálftahrina varð úti fyrir Grímsey í morgun. Á vefsvæði Veðurstofu Íslands má sjá að hrinan hófst um klukkan níu í morgun og stóð til hádegis. Stærsti skjálftinn mældist 2,3 stig, en einnig mældust skjálftar up á 2 stig og 1,9 og 1,7. Engir skjálftar hafa mælst eftir hádegið. Meira »

Börn grétu vegna útigangsmanna

Klambratún.
Í gær, 15:48 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu var kölluð að Klambratúni í dag þar sem útigangsmenn voru með ofstopa og ógnuðu fólki sem þar gekk um. Tilkynnandi sagði að börn hefðu orðið mjög skelfd og brostið í grát vegna þessa. Þegar lögregla kom á vettvang voru mennirnir hins vegar horfnir á braut. Meira »

Slökkt á meðan Kolaportið er opið

Kolaportið
Í gær, 15:26 Tollstjóri hyggst slökkva á eftirlitsmyndavélum á húsi embættisins við Tryggvagötu á meðan Kolaportið er opið. Þetta kemur fram í umsögn Persónuverndar um fyrirhugaða vöktun hússins. Meira »

Öskureið út í Pál Óskar

Í gær, 14:41 Ulker Gasanova sem fluttist til Íslands frá Aserbaídsjan árið 2001 með móður sinni, Sevil Gasanova, er ekki sátt við málflutning Páls Óskars vegna undirbúnings Evróvisjónkeppninar sem fer fram í Aserbaídsjan í ár. Meira »

Innlend málefni

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Sjónvarpsskenkur
Sjónvarpsskenkur með miklu geymslurými til sölu. Verð kr. 20.000. Upplýsingar ...
HREINSA ÞAKRENNUR
Hreinsa þakrennur og tek að mér ýmis smærri verkefni. Sími 847 8704, manninn@hot...
VANTAR Á SKRÁ.
Vantar bíla á söluskrá Mikil eftirspurn! Lágmarkssöl...
Húsasmíðameistari
Get bætt við mig verkefnum. Tilboð eða tímavinna. Fagmennska er málið. Uppl...
 
Skipstjóri
Önnur störf
Skipstjóri Skipstjóri ...
Samkoma
Félagsstarf
Kaffi Amen,föstudagur kl. 21Lifan...
Tölvunarfræðingur forritari
Lager/útkeyrsla
Tölvunarfræðingur â€" forr...