Vísar ásökunum um lygar á bug
Jónas Fr. Jónsson, fyrrverandi forstjóri Fjármálaeftirlitsins, vísar á bug ásökunum fyrrum yfirmanns hollenska bankaeftirlitsins, sem hann bar fram á fundi hollenskrar þingnefndar í gær, um að starfsmenn Fjármálaeftirlitsins hafi logið að starfsmönnum hollenska seðlabankans um stöðu Landsbankans í ágúst 2008.
„Starfsmenn Fjármálaeftirlitins gáfu þær upplýsingar um fjárhag Landsbankans sem þeir töldu réttar hverju sinni byggðar á fyrirliggjandi gögnum frá bankanum og hálfsársuppgjöri 2008, árituðu af endurskoðendum bankans. Ásökunum um lygar starfsmanna Fjármálaeftirlitsins er vísað á bug, en þar lagði fólk sig fram um að sinna starfi sínu af fagmennsku og heiðarleika," segir í yfirlýsingu Jónasar.
Fram kemur í yfirlýsingunni, að útibú Landsbankans í Hollandi hóf starfsemi sína á árinu 2006. Útibúið bauð innlánsreikninga fyrir almenna sparifjáreigendur vorið 2008 eftir að hafa fengið grænt ljós frá hollenskum yfirvöldum í kjölfar samninga tryggingasjóða innistæðueigenda í báðum löndum. Samkvæmt Evrópureglum hafi hollensk yfirvöld farið með eftirlit með neytendavernd og lausafé útibúsins, auk ýmissa annarra heimilda ef nauðsyn krefði.
„Í viðræðum við Hollendinga í ágúst og september 2008 var rætt um að Landsbankinn setti upp varasjóð í Hollandi. Tillagan var ekki afgreidd af hálfu Hollendinga. Hefði það verið gert hefði sjóðurinn getað numið hátt í 600 milljónum evra þegar bankinn féll. Hefði þar munað um minna.
Enginn sá fyrir þær einstæðu fjármálahamfarir sem urðu í heiminum í lok september og byrjun október 2008. Í Hollandi þurfti að þjóðnýta Fortis banka, ING bankinn þurfti verulega fjárhagsaðstoð frá ríkinu og smærri fjármálaþjónustufyrirtæki s.s. Aegon og SNS fengu ríkisaðstoð, auk almennra aðgerða. Haustið 2009 féll DSB bankinn. Embættismenn í Hollandi vilja beina athyglinni frá þessum heimavanda með yfirlýsingum og hörku gagnvart Íslendingum um Icesave," segir í yfirlýsingu Jónasar Fr. Jónssonar.
Bloggað um fréttina
-
Jens Guð Spilling og barátta gegn spillingu -
Jóna Kolbrún Garðarsdóttir Hvar er sönnunarbyrgðin? -
Árni Þór Björnsson Lygar um lygar -
Guðjón Sigþór Jensson Hver lýgur? -
Hrannar Baldursson Skal ásaka slökkvilið fyrir hús sem brenna? -
Egill Arnar Rossen Fyllibytur -
Flosi Kristjánsson The National Bank of Iceland -
Jakobína Ingunn Ólafsdóttir Er þetta tromp fjármálaráðherrans? -
Jón Baldur L'Orange Fjármálaeftirlitið var stimplastofnun fyrir bankana
Innlent »
- 17 kýr mjólkuðu yfir 10 þúsund kíló
- Börnin uppgötva undraheima Legó
- Evrópusambandið kynnir sig sjálft
- SUF vill draga ESB-umsóknina til baka
- Vilja efla siðferði í stjórnmálum
- Enginn með einkarétt á Samstöðu
-
Yrði öðruvísi biskup
- Handteknir fyrir að keyra á mann
- Hefur hátt í fangaklefa
-
Martröð í matarboði
- Leikstjórinn kom inn sem ljón
- Fjöruverðlaun eftir viku
- Enn skelfur við Grímsey
- Opið á skíðasvæðum
- Fíkniefnasali handtekinn
- Braut rúðu í lögreglubíl
Laugardagur, 11.2.2012
- „Ég er í skýjunum“
- „Mjög sérstök tilfinning“
- Jónsi og Greta til Bakú
- Úrslitakeppnin hafin í Hörpu
- Helmingur vill að ákæran verði dregin til baka
- Fjör á 112-deginum á Húsavík
- Hvessir af suðri seint í kvöld
- Ekki hika – hringdu til öryggis
- Mannréttindi alltaf í fyrsta sæti
- Möguleikar nýju framboðanna
- Enginn flótti af Y-lista
- Iðnaðarmaður ræsti brunaboða
- Búðarþjófur ógnaði starfsmanni
- Börn grétu vegna útigangsmanna
- Fangar reyna oft að ná í fíkniefni
- Slökkt á meðan Kolaportið er opið
- Skjálftahrina við Grímsey
- Öskureið út í Pál Óskar
- Fleiri vilja aukið íbúalýðræði
- „Stærstu verðlaunin eru heima“
- Afþökkuðu fund í forsætisráðuneyti
- Óttast uppsögn
- Játaði sprengjumálið
- Ný fiðrildategund á Íslandi
- „Mjög hrottafengin árás“
- Ráðist á mann á áttræðisaldri
- Hass og árás á leigubílstjóra
- Viðskotaillur og vildi ekki hjálp
- Gestgjafinn varð æfur
- Maður stunginn í Hafnarfirði
- Hrun í ruslinu frá hruni
- 112-dagurinn er í dag
- Hafa gert hugtakið merkingarlaust
- Fá 10 þúsund kr. fyrir skinnið
- Hálka víða um land
- Of ungir inni á Kónginum
- Opið á skíðasvæðum fyrir norðan og austan
- Óbreyttur dagafjöldi á grásleppu
- Vilja starfshóp um atvinnumálin
- Bjartviðri austanvert
- Fengu lán úr sjóðum
- Vildu vera í Póllandi
Innlend málefni
- Hallgrímur SI fórst undan ströndum Noregs
- Landsdómur
- Bæjarstjórnarmeirihluti sprunginn í Kópavogi
- Baldur Guðlaugsson - dómsmál
- Ólga innan VG
Svipaðar fréttir
- Þriðjudagur, 2. febrúar 2010, Innlent Vill fund í viðskiptanefnd
- Föstudagur, 5. febrúar 2010, Innlent Aldrei hitt Hollendingana
- Miðvikudagur, 3. febrúar 2010, Innlent Stjórnvöld lugu ekki
- Mánudagur, 1. febrúar 2010, Innlent Talaði ekki um Seðlabankann
- Þriðjudagur, 2. febrúar 2010, Innlent Rannsakað hvort erlendar eftirlitsstofnanir fengu rangar upplýsingar
-
Benedikt: Stóðumst áhlaup Stjörnunnar
-
Skemmdarverk verða ekki liðin
-
Léttist um rúmlega 60 kíló
-
Lítilli stúlku bjargað úr snjóflóði
-
Aron: Frábær vörn og markvarsla
-
Fólk víða að minnist Houston
-
Aðdáendur Houston bíða frétta
-
Yrði öðruvísi biskup



































