Hrunamenn undrast Þjórsármál

Efsta virkjunin í neðri hluta Þjórsár er áformuð á þessum slóðum. Horft er til Heklu. stækka

Efsta virkjunin í neðri hluta Þjórsár er áformuð á þessum slóðum. Horft er til Heklu. mbl.is/Sigurður Bogi

Hreppsnefnd Hrunamannahrepps samþykkti í gærkvöldi ályktun þar sem lýst er undrun á þeirri ákvörðun umhverfisráðherra að neita að staðfesta tilllögu um breytingu á aðalskipulagi Flóahrepps og Skeiða- og Gnúpverjahrepps sem snýr að virkjunum í neðri Þjórsá.

Sveitarstjórn Flóahrepps samþykkti einnig ályktun á fundi í gærkvöldi þar sem lýst er undrun  á synjun umhverfisráðherra á staðfestingu aðalskipulagsins. Segist sveitarstjórnin  telja að rétt hafi verið staðið að gerð og samþykkt  skipulagsins og að í ljósi þeirra röksemda sem ráðherra byggi synjun sína á vakni spurningar um hvort öll sveitarfélög á landinu sitji við sama borð þegar kemur að skipulagsmálum.

„Lengi hefur tíðkast að sveitarfélög víða um land hafi haft þann háttinn á að láta aðila sem óska eftir breytingum á deiliskipulagi og aðalskipulagi bera hluta af kostnaði sem hlýst af skipulagsvinnunni. Hefur þetta fram til þessa verið talið heimilt og ekki verið gerðar athugasemdir af hálfu ráðherra. Þá gerir sveitarstjórn alvarlegar athugasemdir við málsmeðferð ráðherra. Bæði tók málið mjög langan tíma hjá ráðherra auk þess sem sveitarstjórn var ekki kynnt bréf og gögn frá aðilum, sem vísað er til í ákvörðun ráðherra en þetta eru bréf og gögn sem bárust ráðuneytinu eftir að lögformlegum athugasemdafresti var lokið," segir í bókun sveitarstjórnarinnar.

Var sveitarstjóra og oddvita falið að skoða nánar í samráði við lögmann sveitarfélagsins þær leiðir sem færar séu í ljósi þeirrar stöðu sem upp er komin í málinu í kjölfar synjunar ráðherra á staðfestingu aðalskipulagsins.

Í viðtengingarhætti

Umhverfisráðuneytið sendi í morgun frá sér leiðréttingu vegna frétta af bókun sveitarstjórnar Skeiða- og Gnúpverjahrepps, þar sem meintum ærumeiðingum umhverfisráðherra í ákvörðun um breytingu á aðalskipulagi hreppsins er mótmælt. 

„Bókun sveitarstjórnarinnar byggir að mati ráðuneytisins á misskilningi á einni efnisgrein í bréfi umhverfisráðherra. Má ef til vill rekja misskilninginn til þess að sveitarstjórnarmönnum hafi yfirsést að síðasta sögn efnisgreinarinnar er í viðtengingarhætti.

Sú efnisgrein í bréfi ráðherra sem sveitarstjórnin vísar til er svohljóðandi:

„Í framkomnum gögnum hafa komið fram upplýsingar um að sveitarstjórnarmenn hafi persónulega þegið aukagreiðslur frá Landsvirkjun vegna funda í sambandi við skipulagsgerðina sem ekki hafi verið færðar til bókar og að þær greiðslur hafi verið inntar af hendi í lok árs 2009. Að mati ráðuneytisins verður að telja slíka tilhögun ólögmæta við skipulagsgerð sveitarstjórnar eigi hún sér stað."

Þarna vísar ráðuneytið til þess að í gögnum hafi komið fram það sama og var áberandi í umræðu um málið á sínum tíma - að einstaklingar hafi þegið greiðslur frá framkvæmdaraðila. Ráðuneytið leggur ekki mat á þær upplýsingar, enda eru þær ekki lagðar til grundvallar ákvörðun ráðuneytisins í málinu. Hins vegar er talin ástæða til að nefna þetta og undirstrika þann lagaskilning að slíkar greiðslur stangist á við lög ef þær eiga sér stað. Ekki er kveðið upp úr með að þær hafi átt sér stað í þessu tilviki - þótt sveitarstjórnin hafi túlkað texta ráðuneytisins svo," segir í tilkynningu ráðuneytisins.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Tveir ökumenn voru í kvöld stöðvaðir fyrir of hraðan akstur, annar ók á 136 km ...

Tekinn á 136 km hraða í kvöld

Í gær, 22:40 Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Hvolsvelli voru tveir teknir fyrir of hraðan akstur í umdæminu í kvöld. Báðir ökumenn voru við Kirkjubæjarklaustur og ók annar þeirra á 136 km hraða. Meira »
Spákort sem sýnir veðurspá á miðnætti í kvöld.

Versnandi veður á fjallvegum

Í gær, 22:29 Versnandi veður verður á fjallvegum um vestan- og norðvestanvert landið seint í kvöld, hríðarveður og slæmt skyggni verður fram á nóttina um leið og skil lægðar ganga yfir. Búast má við hviðum allt að 30-40 m/s á Kjalarnesi og undir Hafnarfalli frá því um kl. 21 til 22 í kvöld og fram á nóttina. Meira »

Tilkynnti úrsögn úr félaginu

Verðlaunaafhending Félags kvenna í atvinnurekstri á dögunum.
Í gær, 21:18 Dominique Plédel, rekstraraðili Vínskólans, hefur sagt sig úr Félagi kvenna í atvinnurekstri í mótmælaskyni. Framkvæmdastjóri félagsins staðfestir úrsögnina, en segir að lítið sé um úrsagnir undanfarna daga. Meira »

Munu skoða lífeyrissjóðina

Ólafur Þór Hauksson, sérstakur saksóknari.
Í gær, 21:08 Embætti sérstaks saksóknara mun ræða skýrsluna um lífeyrissjóðina, sem birt var í dag, á næsta fundi sínum með Fjármálaeftirlitinu. Sérstakur saksóknari segir þó of snemmt að segja til um það hvort hún gefi tilefni til rannsóknar hjá embættinu. Meira »

RÚV vann verðlaun

Merki RÚV.
Í gær, 19:27 Vefur RÚV, ruv.is, var valinn besti afþreyingar- og fréttavefurinn af Samtökum vefiðnaðarins í kvöld. Í úrskurði dómnefndar segir að vefurinn sé tæknilega vel útfærður og aðgengilegur og að fáir vefir standi jafnfætis ruv.is þegar komi að efnismiklu og fjölbreyttu innihaldi. Meira »

Grindavík vann

Lið Grindavíkur í Útsvari 2012.
Í gær, 21:16 Grindavíkurbær fór með sigur af hólmi í Útsvari í kvöld í keppni sinni við Skagafjörð. Vinningsliðið var með 110 stig, en Skagfirðingar með 57 stig. Meira »

Mikill skákáhugi hjá stúlkum

Í gær, 20:39 Milli 60 og 70 stúlkur taka þátt í Íslandsmóti grunnskólasveita, stúlknaflokki, sem fram fer í Rimaskóla á morgun, laugardaginn 4. febrúar. Nú eru fimmtán sveitir skráðar til leiks, mun fleiri en á síðasta ári. Meira »

Fíkniefni fundust í Þorlákshöfn

Lögreglustöðin á Selfossi.
Í gær, 18:57 Fíkniefni fundust við húsleit í Þorlákshöfn í dag, skv. upplýsingum frá lögreglunni á Selfossi. Um var að ræða 1-2 grömm af kannabisefnum og tvö grömm af amfetamíni. Meira »

Margir aka á strætórein

Í gær, 18:30 Töluvert er um að ökumenn virði ekki lög um notkun akbrauta, en þau kveða m.a. á um að þar sem sérstakar reinar eru fyrir mismunandi tegundir ökutækja skuli ökumaður nota þá rein, sem ökutæki hans er ætluð. Meira »

Eldfjall fær 13 tilnefningar

Edduverðlaunin
Í gær, 18:03 Tilnefningar til Edduverðlaunanna 2012 hafa verið kunngjörðar og verða verðlaunin afhent í Gamla bíói 18. febrúar. Kvikmynd Rúnars Rúnarssonar, Eldfjall, er tilnefnd til 13 verðlauna. Meira »

PIP-fyllingar verði fjarlægðar

PIP-sílikonbrjóstapúðar
Í gær, 18:15 Landlæknir telur að fjarlægja eigi PIP-brjóstafyllingar úr þeim íslensku konum sem þær bera. Þetta var ákveðið eftir að sérfræðingahópur skilaði skýrslu um fyllingarnar. Landlæknir segir að um sé að ræða falsaða púða. Meira »

Varnarlaus gagnvart kúlulánum

Skýrslan var kynnt í dag.
Í gær, 17:57 Lífeyrissjóðirnir sem keyptu skuldabréf fyrirtækja gátu ekki komið við neinum vörnum þó rekstrarforsendur fyrirtækja eða eiginfjárhlutfall breyttust verulega. Ástæðan er sú að engir skilmálar voru bréfunum að sjóðirnir gætu gjaldfellt bréfin. Meira »

„Erum að sigla í rétta átt“

Ómar Stefánsson.
Í gær, 17:50 „Þetta mjakast og kemur vonandi allt í ljós um helgina,“ segir Ómar Stefánsson, bæjarfulltrúi Framsóknarflokksins í Kópavogi, en viðræður bæjarfulltrúa Framsóknar, Sjálfstæðisflokks og Y-lista Kópavogsbúa hafa staðið yfir síðan í gær. Meira »

Verðum að læra af reynslunni myndskeið

lifeyrir hallur
Í gær, 17:32 Arnar Sigurmundsson, formaður Landssambands lífeyrissjóða, vonast til þess að hægt verði að draga lærdóm af skýrslunni um starfsemi sjóðanna á árunum fyrir hrun sem lögð var fram fyrr í dag. Hann hafði ekki séð skýrsluna fyrr en í dag en hann sagði hana ekki hafa komið verulega á óvart. Meira »

Var þörf á gjaldeyrisvörnum?

Nefndarmenn kynntu skýrsluna um lífeyrissjóðina í dag.
Í gær, 17:29 Guðmundur Heiðar Frímannsson heimspekiprófessor segist ekki sannfærður um að það hafi verið rétt ákvörðun hjá lífeyrissjóðunum að gera gjaldeyrisvarnasamninga við bankana, en sjóðirnir töpuðu miklum fjármunum á þeim. Meira »

Festu bíla á Nesjavallavegi

Merki Landsbjargar
Í gær, 17:41 Þrír hópar úr björgunarsveitum Slysavarnafélagsins Landsbjargar á höfuðborgarsvæðinu eru nú á leið til aðstoðar ökumönnum sem fest hafa bíla sína. Um er að ræða þrjár bifreiðar, tvær á Nesjavallavegi og eina við Stardal á Mosfellsheiði. Meira »

Gestirnir fóru út með áfengið

Í gær, 17:29 Fyrr í vikunni stöðvaði lögreglan sölu áfengis á tveimur veitingahúsum í miðborginni eftir að komið var fram yfir leyfðan afgreiðslutíma en á öðru þeirra voru gestir staðarins jafnframt að bera með sér áfengi út af staðnum. Meira »

Luna fann marijúana

Fíkniefni fundust í Herjólfi í dag.
Í gær, 17:22 Fíkniefnahundurinn Luna komst á snoðir um kannabisefni um borð í Herjólfi í dag. Efnin voru í bíl og voru eigandi bílsins og ökumaður réttindalausir. Meira »

Innlend málefni

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Shar Pei hvolpur
Þessi 10 vikna Shar Pei hvolpur (rakki) er tilbúinn til afhendingar til nýrra ei...
Hyundai Starex 7.manna 06 4x4 krókur 2.8
Til Sölu glæsilegur 7.manna árg 06 4x4 krókur stigbretti frábær ferðabíll rúmgóð...
Búslóðaflutningar www.keyrsla.is
Heimsendingar - Búslóðaflutningar - Fyrirtækjaþjónusta sjá á www.keyrsla.is og s...
Hyundai Tucson árg ´04 til sölu
Til sölu þessi fallegi bíll, keyrður 117 þús, bensín, sjálfskiptur, heilsársdekk...
 
Kristniboðssambandið samkoma
Félagsstarf
Háaleitisbraut 58-60 Samkoma í kvöld kl....
Stúkan hekla
Félagsstarf
mHekla 6012013019 VI...
Sýslumaðurinn á hvolsvelli - framhald uppboðs

Uppboð Framhald uppboðs á eftirfarandi e...
Stúkan helgafell
Félagsstarf
m HELGAFELL 6012020219 IV/V...