Sektaður vegna Rolexúrs

Úr af gerðinni Rolex Oyster.
Úr af gerðinni Rolex Oyster.

Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt karlmann til að greiða 400 þúsund krónur í sekt fyrir að ætla að flytja til landsins Rolex Oyster armbandsúr, 5 silkihálsbindi, 21 silkihálsklút og leðurhandtösku án þess að greiða innflutningsgjöld.

Auk sektarinnar var maðurinn dæmdur til að greiða málsvarnarlaun lögfræðings, 180 þúsund krónur.

Maðurinn kom með flugvél til landsins frá Kaupmannahöfn í janúar. Fram kemur í dómnum, að maðurinn hafi gengið með eitt silkihálsbindi, einn silkihálsklút og leðurhandtösku um tollhlið merkt skilti með áletruninni „Enginn tollskyldur varningur". Samferðamaður mannsins gekk með annan varning, sem tilheyrði farangri mannsins, um sama tollhlið.

Leitað var í farangri mannsins og fundust þá munirnir sem hann var með í tösku sinni. Hann skilaði öðrum munum til tollgæslunnar daginn eftir. 

Úrið er metið á rúmar 619 þúsund krónur, silkihálsbindin á samtals 63 þúsund krónur, hálsklútarnir á 265 þúsund krónur og taskan 56 þúsund krónur.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert