Umferðaróhapp á Austurvegi

Lögreglan
Lögreglan

Umferðaróhapp varð á Austurvegi á Selfossi um hálfsex í kvöld er  ökumaður missti stjórn á bíl sínum sem lenti á ljósastaur. 

Ökumaður og farþegi sluppu við meiðsl utan minniháttar hnjask að sögn lögreglunnar á Selfossi.  Bíllinn, sem er fólksbíll, er hins vegar mikið skemmdur. Bleyta var á veginum er óhappið átti sér stað.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert