Finnur: Hagar greiddu upp skuldabréfaflokk


Forstjóri Haga, Finnur Árnason segir að fyrirtækið hafi greitt upp skuldabréfaflokk í Kauphöllinni að fullu, eitt fyrirtækja. Segir hann að í ljósi umræðu um fjárfestingarstefnu lífeyrissjóða sé nauðsynlegt það komi fram. 

„Lífeyrissjóðirnir fjárfestu fyrir hrun bankakerfisins í skuldabréfum margra íslenskra fyrirtækja, sem skráð voru í Kauphöllinni.  Hagar voru með skuldabréfaflokk, skráðan í Kauphöllinni, sem var á gjalddaga í október 2009, rúmu ári eftir hrun bankakerfisins.  Hagar eru eina fyrirtæki landsins sem greiddi skráðan skuldabréfaflokk í Kauphöllinni að fullu ásamt vöxtum á gjalddaga eftir hrun. 

Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins, fjárfesti í skuldabréfum Haga og fékk þau greidd að fullu.  Hagar áttu gott samstarf við lífeyrissjóð starfsmanna ríkisins. Starfsfólk Haga er þakklátt fyrir það traust sem stjórn sjóðsins sýndi með því að fjárfesta í skuldabréfum Haga.  Draga verður þá ályktun af ummælum Eiríks Jónssonar, formanns Kennarasambandsins, í fjölmiðlum síðustu daga, að hann skorti upplýsingar, eða hafi fengið rangar upplýsingar um Haga.
 
Hagar hvetja lífeyrissjóði landsins til þess að gæta varfærni í fjárfestingum.  Eðlilegt er að leitað sé öruggra leiða fyrir ævisparnað fólks, þegar kemur að fjárfestingum.   Nú er unnið að undirbúningi að skráningu Haga í Kauphöllina, m.a. með því að útbúa skráningarlýsingu.  Þegar hún liggur fyrir er eðlilegt að lífeyrissjóðir landsins taki ákvörðun hver fyrir sig, um hvort þeir hafi áhuga á að fjárfesta í íslensku fyrirtæki, sem veitir 2.500 manns atvinnu og hefur það orðspor að standa við skuldbindingar sínar.  Ekki fyrr," segir í tilkynningu frá Finni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert