Langt gengið eða skammt?

Fimm ráðherrar kynntu í gær tillögur vegna skuldavanda heimila og einstaklinga. stækka

Fimm ráðherrar kynntu í gær tillögur vegna skuldavanda heimila og einstaklinga. mbl.is/Ómar

mbl.is Eftir Unu Sighvatsdóttur una@mbl.is

Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, gagnrýnir þær aðgerðir sem ríkisstjórnin kynnti í gær vegna skuldavanda heimilanna, segir þær óljósar og muni ekki duga.  Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ, er á öndverðri skoðun og hefur mikla trú á aðgerðunum, sem hann segir í flestu fara eftir tillögum ASÍ.  

„Mér finnst þetta mjög jákvætt skref sem þarna er tekið, mér sýnist að þær kröfur sem við höfum sett fram við stjórnvöld séu að flestu leyti ef ekki öllu til skila haldið,“ segir Gylfi Arnbjörnsson, formaður Alþýðusambands Íslands.

Gylfi segist í megindráttum ánægður með þann aðgerðapakka sem ríkisstjórnin kynnti í gær, þar sé að finna úrræði sem ASÍ hafi lengi mælt fyrir, s.s. frjálsa greiðsluaðlögun að norskri fyrirmynd. Þá líst honum vel á hugmyndir um nýtt embætti umboðsmanns skuldara.

„Ég fagna því að efla eigi það starf sem hefur verið í Ráðgjafarstofu heimilanna. Við höfum talið það mjög mikilvægt að stofnanaleg umgjörð í kringum þetta sé skilvirkari og það sé unnið af meiri yfirsýn. Ég treysti því að í þessu frumvarpi verði gert ráð fyrir þeim fjármunum sem þurfa til að mæta þeim mikla fjölda heimila sem þurfa aðstoð.“

Hvað varðar ummæli forsætisráðherra að með aðgerðunum sé búið að ná utan um vandann segist Gylfi vilja hafa fyrirvara á því, fylgjast verði með hvernig fram vindur. „En ég er þeirrar skoðunar að það sé mjög langt gengið í því að mæta vandanum og vel að þessu staðið.“

Umfang vandans vanmetið

Annar tónn er hinsvegar í Hagsmunasamtökum heimilanna, sem telja við fyrstu sýn að ekki sé nógu langt fram gengið með aðgerðunum.

„Það er athyglisvert að það eru fimm ráðuneyti sem koma þarna fram og þeim er mikið í mun að selja þá staðhæfingu að mikið hafi verið gert. Þarna er verið að slá svolítið um sig,“ segir Friðrik Ó. Friðriksson, formaður samtakanna.

Samtökin meta það sem svo, byggt á talnagrunni Seðlabankans og skattagögnum 2008, að tugir þúsunda heimila séu á leiðinni í eða þegar komin í verulega greiðsluerfiðleika. „Þetta gæti verið af stærðargráðunni 45 þúsund heimili,“ segir Friðrik. „Miðað við það er svolítið sláandi að félagsmálaráðherra sé ákaflega ánægður að nú sé einn og hálfur milljarður lagður til hliðar á greiðslujöfnunarleið, að 450 manns séu í greiðsluaðlögun og 350 manns komin í sértæka skuldaaðlögun. Þetta eru um 800 manns sem nota þessi úrræði, en það eru tugir þúsunda heimila sem standa frammi fyrir gríðarlega þröngri stöðu.“

Friðrik er þeirrar skoðunar að úrræði ríkisstjórnarinnar séu ekki í samræmi við umfang vandans og leggur áherslu á að viðurkenna þurfi að forsendubrestur hafi orðið og ráðast í almenna leiðréttingu skulda.

„Þarna eru innleidd úrræði sem eru vissulega réttarbót og skref í rétta átt, en taka engan veginn á því að forða fólki frá því að lenda í greiðsluerfiðleikum.“

Embætti umboðsmanns skuldara sé liður í sömu stefnu. „Fólk fer í gegnum þetta með betri réttarstöðu, en fer samt í gegnum þetta. Það á að þvinga verulegan hluta íslenskra fjölskyldna inn í nauðasamninga, sem þýðir að þúsundir íslenskra fjölskyldna munu búa við skert fjárræði um komandi ár.“

„Hef enga trú á því að þetta dugi “

„Mér finnst þetta vera gamalt vín á nýjum belgjum, það er verið að segja hluti sem löngu voru ákveðnir og frá aðgerðum sem gripið var til allt frá október 2008,“ segir Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins. „Í öðru lagi þá fyllist ég ekki bjartsýni um að nú séu hlutirnir að fara að lagast þegar helsta hugmyndin er sú að koma á nýrri ríkisstofnun,“ segir Bjarni og vísar í embætti umboðsmanns skuldara.

Hann segir auk þess nauðsynlegt að þegar aðgerðir sem þessar séu kynntar tali menn skýrt, en það geri ríkisstjórnin ekki, s.s. hvað varðar hugmyndir um skattlagningu á niðurfellingu skulda. „Hvað er átt við með stórfelldum niðurfellingum? Ætla menn að gera þetta afturvirkt? Þetta er mjög óljóst og mér finnst þetta vera lítil skref miðað við umfang vandans eins og hann blasir við mér. Ég hef enga trú á því að þetta dugi til.“

Enn þörf á leiðréttingu

„Ég á eftir að skoða útfærsluna á þessum hugmyndum betur, en vil hinsvegar segja að það er þörf á því að fara í almennilegar leiðréttingar,“ segir Margrét Tryggvadóttir, þingmaður Hreyfingarinnar. „Þetta er skref í rétta átt, en þetta er ekki nóg. Ef við eigum að upplifa samfélagið okkar sem réttlátt þá verða að koma til almennar leiðréttingar, því það varð hérna algjör forsendubrestur.“ Margréti líst hinsvegar vel á hugmyndir um umboðsmann skuldara og eins að komið verði á kaupleigukerfi hjá Íbúðalánasjóði. „Það er eitt og annað jákvætt í þessu, en mér finnst ekki nógu langt gengið.“
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Mætti innbrotsþjófum í forstofunni

12:05 Húsráðanda í Reykjanesbæ brá töluvert þegar hann kom heim til sín aðfaranótt laugardagsins en í forstofunni mættu honum tveir bláókunnugir karlmenn. Þeir tóku báðir til fótanna og hurfu út í nóttina. Meira »
Búast má við fjölda fólks í sundi í dag.

Veðurblíða víða um land

11:35 Hiti fer allt upp í 20 gráður á Norðurlandi í dag en að sögn veðurfræðings hjá Veðurstofu Íslands verður mjög gott veður um allt land í dag og næstu daga. Meira »

Ölvaður ökumaður reyndi að stinga af

11:08 Sautján ökumenn óku yfir leyfilegum hámarkshraða við umferðareftirlit lögreglunnar á Suðurnesjum um helgina. Ellefu gerðust brotlegir með þeim hætti á aðeins þremur klukkustundum í kringum miðnætti í gær. Meira »

Ferry heillaði í Hörpu

Bryan Ferry í grænum bjarma á tónleikunum í Hörpu í gærkvöldi.
00:43 Bryan Ferry vakti stormandi lukku þegar hann kom fram í Hörpu í gærkvöldi. Ferry lék mörg af sínum þekktustu lögum, jafnt frá sólóferli sínum sem af plötum sínum með hljómsveitinni Roxy Music. Ferry kemur aftur fram í Hörpu í kvöld. Meira »

Fyrst til að verða meistari í bílasmíði

Anna Kristín á leið í útskriftina í gær.
Í gær, 21:19 „Áhuginn hafði alltaf blundað í mér,“ segir Anna Kristín Guðnadóttir, sem í gær útskrifaðist með meistarapróf í bílasmíði fyrst íslenskra kvenna. Meira »

Kosningamiðstöð Þóru opnuð

Þóra Arnórsdóttir.
10:48 Kosningamiðstöð forsetaframboðs Þóru Arnórsdóttur verður opnuð í gömlu Heilsuverndarstöðinni við Barónsstíg í dag.   Meira »

Peningar ekki rót alls ills myndskeið

Peningar ekki rót alls ills
Í gær, 21:46 Framhaldsskólanemar eyða almennt mestum pening í mat, áfengi og bensín. Þeim gengur misvel að spara og fæstir hafa fengið nokkra fjármálafræðslu, en finnst þörf á því. Þetta kom í ljós þegar mbl.is spjallaði við ungmenni um fjármálalæsi, en í því hafa Íslendingar ítrekað fengið falleinkunn. Meira »

Átta umferðarslys á tíu dögum í og við Búðardal

Í gær, 19:40 Hvítasunnuhelgin virðist almennt ganga vel fyrir sig að sögn lögreglunnar um land allt enda sól og blíða víðast hvar og tíðindalítið ef frá er talið í Búðardal. Meira »

Þriðja árið í röð í 19. - 20. sæti

Jónsi og Gréta á sviðinu í Bakú.
Í gær, 18:47 Íslenski Evróvisjónhópurinn var rúmlega hálfnaður á leiðinni heim þegar mbl.is náði tali af Hrafnhildi Halldórsdóttur nú fyrir stundu. Von er á hópnum til landsins með vél Icelandair í kvöld. Meira »

Catalina er í fullu fjöri

Catalina flugbáturinn sem flaug yfir Reykjavík í dag.
Í gær, 17:26 Flugbátar af Catalinagerð voru í notkun hér á landi á árunum 1944-1963 og var slík vél fyrsta íslenska flugvélin til að fljúga á milli landa og önnur lék stórt hlutverk í þorskastríðinu. 68 ára gömul Catalinavél sveif um loftin blá yfir Reykjavík í dag og verður til sýnis á Flugdeginum á morgun. Meira »

Flestir hlynntir staðgöngumæðrun

Í gær, 18:36 Meirihluti Íslendinga er fylgjandi staðgöngumæðrun. Munur er á skoðunum fólks á málefninu eftir stjórnmálaskoðunum og er andstaðan mest hjá kjósendum Vinstri grænna en minnst hjá þeim sem segjast kjósa Sjálfstæðisflokkinn. Meira »

Skjaldborg í skjóli fjalla

Merki Skjaldborgarhátíðarinnar 2012
Í gær, 17:18 „Þetta litar bæjarlífið virkilega skemmtilega,“ segir Alda Davíðsdóttir, Skjaldborgarstjóri í Sjóræningjahúsinu á Patreksfirði. Um helgina hafa í kringum 300 manns sótt heimildamyndahátíðina Skjaldborg í bænum en þetta er í sjötta sinn sem hátíðin fer fram. Meira »

Fisvél brotlenti við Klaustur

Frá vettvangi slyssins á Kirkjubæjarklaustri.
Í gær, 17:04 Fisvél brotlenti við Ásgerði, skammt frá Kirkjubæjarklaustri, um klukkan þrjú í dag. Tveir menn voru í vélinni og sluppu þeir ómeiddir. Meira »

Þóra opnar skrifstofu

Þóra Arnórsdóttir forsetaframbjóðandi.
Í gær, 16:45 Kosningamiðstöð forsetaframboðs Þóru Arnórsdóttur verður opnuð í gömlu Heilsuverndarstöðinni við Barónsstíg á annan í hvítasunnu, mánudaginn 28. maí. Miðstöðin verður opin alla daga klukkan 14-20 fram að kosningum. Meira »

Lettneska konan enn ófundin

Ligita Solomenceva sem lögreglan leitar að.
Í gær, 16:14 Leit að lettneskri konu sem sást síðast um miðjan þennan mánuð hefur enn ekki borið árangur. Vitað er að hún tók á leigu sumarhús við Meðalfellsvatn og hefur leitin því enn sem komið er farið fram í nágrenni þess. Meira »

Náttúru, sögu og nytjum gerð skil

Ljósmynd frá Veiðivötnum á sýningunni.
Í gær, 17:00 Ljósmyndasýningin „Í Veiðivötnum“ var opnuð í Heklusetrinu á Leirubakka í gær. Það eru hjónin Sigrún Kristjánsdóttir og Pálmi Bjarnason sem eru höfundar myndanna, og er sýningin afrakstur myndatökuferða þeirra við vötnin undanfarin ár. Meira »

Veðrið leikur við landsmenn

Í Nauthólsvík í dag.
Í gær, 16:38 Veðrið leikur við landsmenn núna um hvítasunnuhelgina og gangi veðurspá eftir verður einmuna veðurblíða og hlýindi næstu daga. Meira »

Við akstur undir áhrifum kannabis

Í gær, 15:55 Lögreglan á Selfossi stöðvaði ökumann á Biskupstungnabraut í Grímsnesi rétt fyrir hádegi í dag við reglubundið eftirlit vegna gruns um að sá æki undir áhrifum. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Til sölu Polaris Sportsman 800 , árgerð 2005
Til sölu Polaris Sportsman 800 , árgerð 2005 , ekið 4.700 km. , er á nýjum Bigho...
Cavalier King Charles Spaniel til sölu Frábærir fjölskyldu hundar
Erum með yndislega Cavalier til sölu Afhendast heilsufarsskoðaðir örmerktir og æ...
Yaris T-Sport 2007!!!!
Ek. 64 þús. 17'' felgur. Filmur. Xenon. Nýir diskar og klossar. Eins og nýr! Mjö...
Turbie Twist höfuðhandklæði - sniðug gjöf !
Handklæðin eru rakadræg og haldast á höfðinu. Hentar fyrir börn og fullorðna. Þe...
 
Ársfundur vina vatnajökuls

Ársfundur Vina Vatnajökuls, hollvinasamt...
Starfsleyfisauglýsing
Tilkynningar
Mynd af auglýsingu ...
Sýslumaðurinn í reykjavík - framhald uppboðs

Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur....
Skólastjóri hrafnatilsskóla
Sérfræðistörf
Mynd af auglýsingu ...