Passíusálmar lesnir í dag

Passíusálmar Hallgríms Péturssonar voru lesnir í Hallgrímskirkju í dag samkvæmt …
Passíusálmar Hallgríms Péturssonar voru lesnir í Hallgrímskirkju í dag samkvæmt áralangri hefð. mbl.is/Árni Sæberg

Passíusálmarnir verða lesnir víða í kirkjum í dag, föstudaginn langa. Lesturinn er ýmist í höndum eins eða fleiri og víða er tónlistarflutningur hluti af dagskrá. Píslargöngur verða gengnar á nokkrum stöðum, m.a. kringum Mývatn, frá Valþjófsstöðum að Skriðuklaustri, á Eskifirði og í Laufási í Eyjafirði.

Eyvindur Erlendsson mun hafa skapað þá hefð að lesa Passíusálmana á föstudaginn langa  í Hallgrímskirkju á níunda áratug liðinnar aldar og síðan hefur  hún skotið rótum víða í kirkjum landsins. 

Verðlaunahafar í Stóru upplestrarkeppninni í 7. bekk flytja Passíusálmana í Hallgrímskirkju. 25 upplesara sem unnið hafa til verðlauna í  upplestrarkeppninni síðastliðin fimm ár í Reykjavík og nágrenni lesa sálmana. Þau elstu unnu til verðlauna vorið  1996 en þau yngstu vorið 2009 og fermast í vor.

„Passíusálmarnir eru eitt  mesta listaverk íslenskra bókmennta og verðskulda að vera fluttir  árlega. Viðtökur almennings og árlegur flutningur þeirra í útvarpinu á  lönguföstu eru til marks um að sálmarnir eiga enn erindi við samtímann ekki síður en á dögum Hallgríms og hefðin er fagur vitnisburður um þá  rækt sem við sýnum þessu stórvirki okkar í bókmenntum,“ segir í fréttatilkynningu frá Hallgrímskirkju.

Sr. Hallgrímur var sóknarprestur í Saurbæ frá 1651-1669 eða um 18 ára  skeið. Orti hann þar Passíusálmana, en þeir voru fyrst gefnir út árið  1666. Hafa sálmarnir verið kynslóðunum á Íslandi svo hjartfólgnir í 
gegnum tíðina að sr. Hallgríms hefur oft verið minnst sem prests allrar þjóðarinnar og hennar mesta trúarskálds.

Nánari upplýsingar um lestur Passíusálma í dag er að finna á vef þjóðkirkjunnar.

kirkjan.is

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert