Fólk gengur á dúandi hrauninu
Dæmi eru um að fólk hafi gengið út á nýrunnið hraun við gosstöðvarnar á Fimmvörðuhálsi „af því það dúaði svo skemmtilega“, að sögn Sveins K. Rúnarssonar, yfirlögregluþjóns á Hvolsvelli. Hann segir forkastanlegt að fólk láti sér detta annað eins í hug. Gæsla verður við gosstöðvarnar í kvöld.
Sveinn sagði að töluvert margir hafi verið við gosstöðvarnar í gær. Þangað komu um 100 bílar. Flestir ferðamannanna hegðuðu sér óaðfinnanlega en innan um voru nokkrir sem önuðu „út í tóma dellu“ eins og Sveinn orðaði það.
„Þær fréttir sem ég fékk ofan af gosstöðvunum í gærkvöldi voru að nýjasta sportið væri að ganga uppi á hrauninu því það dúaði svo skemmtilega,“ sagði Sveinn. Hann sagði slíkt framferði vera langt utan við öll skynsemismörk og forkastanlegt að fólk láti sér detta annað eins í hug.
Einungis sólarhringur er liðinn síðan hætti að gjósa í sprungunni sem opnaðist fyrst. Sveinn sagði engan vita hvort hún eigi eftir að láta aftur á sér kræla. Hann minnti á að enn gildi kílómeters bann við umferð í nánd gosstöðvanna.
Sveinn sagði að sig hafi sett hljóðan við að fá fréttir af akstri Top Gear upp á hraunið. „Þeir fengu heimild til að fara inn fyrir lokanir, eins og aðrir fjölmiðlamenn hafa fengið, en ekkert út fyrir það. Þeir hefðu aldrei nokkurn tíma fengið heimild til þess að keyra upp á hraunið. Ekki undir nokkrum kringumstæðum,“ sagði Sveinn.
„Að menn skuli setja nafn sitt við þetta finnst mér með ólíkindum. Ég er orðlaus yfir því.“
Áframhaldandi gæsla við gosstöðvarnar
Gert er ráð fyrir að gæsla verði við gosstöðvarnar á Fimmvörðuhálsi í kvöld og einnig um helgina. Reiknað er með að björgunarsveitir og lögregla annist gæsluna eins og hingað til. Einhver gæsla verður einnig Þórsmerkurmegin. Sveinn minnti á að Heljarkambur og Brattafönn séu á bannsvæði og að þangað eigi fólk ekki að fara.
Bloggað um fréttina
-
Þórarinn Þ Gíslason NÚ BÍÐUM VIÐ FRÉTTA AF STÓRSLYSI AF GOSSVÆÐINU, ANNAÐ ER ... -
Vinir Ketils bónda, áhugamannafélag Setja þarf lög á heimsku fólks -
Njörður Helgason Ævintýri að finna hitann og hreyfinguna. -
Jóhann Elíasson FÓLK ER FÍFL!!!!!!!!!!!!!!!!!! -
Guðlaugur Hermannsson Stærsta "útigrill" í heimi? -
Björn Finnbogason Skella ríkisstjórninni á hraunið! -
Alli 5% Íslendinga ... -
Halldóra Lára Ásgeirsdóttir Fólk gengur á dúandi hrauninu. -
Bjarni Pálsson Stórvarasamt - Einangrunargildi hraunkvikunnar blekkir! -
S i g u r ð u r Sigurðarson Hvar er girðingin? -
Bergur Thorberg Dúa diddy diddy dom diddy dom
Innlent »
- Fleiri vilja aukið íbúalýðræði
- „Stærstu verðlaunin eru heima“
- Afþökkuðu fund í forsætisráðuneyti
- Óttast uppsögn
- Játaði sprengjumálið
- Ný fiðrildategund á Íslandi
- „Mjög hrottafengin árás“
- Ráðist á mann á áttræðisaldri
- Hass og árás á leigubílstjóra
- Viðskotaillur og vildi ekki hjálp
- Gestgjafinn varð æfur
- Maður stunginn í Hafnarfirði
- Hrun í ruslinu frá hruni
- 112-dagurinn er í dag
- Hafa gert hugtakið merkingarlaust
- Fá 10 þúsund kr. fyrir skinnið
- Hálka víða um land
- Of ungir inni á Kónginum
- Opið á skíðasvæðum norðan og austan
- Óbreyttur dagafjöldi á grásleppu
- Vilja starfshóp um atvinnumálin
- Bjartviðri austanvert
- Fengu lán úr sjóðum
- Vildu vera í Póllandi
- Þrír forsætisráðherrar á sólarhring
- Lífeyrissjóðir bjóða í krónur
- Þór er kominn til Noregs
- Ýsan var dýrari en þorskurinn
Föstudagur, 10.2.2012
- Vandi stjórnarinnar gerður að vanda fjórflokksins
- Ökumenn í vanda vegna hálku
- Hestar sluppu eftir bílveltu
- Nokkrir skjálftar í kvöld
- Snjóar í höfuðborginni
- Vilja breyta skipan á höfuðborgarsvæðinu
- Fljótsdalshérað vann Hveragerði
- Æfa í þröngu, köldu og leku húsnæði
- Vel á annað þúsund á Bessastöðum
- Akureyrarstofa óánægð með Alþingi
- Fíkniefni ætluð fanga fundust
- Meirihluti vill kosningar í vor
- Gáleysi að fara upp lausan stiga
- Stuðningsmenn Sigurðar Árna boða fund
- Miklaborg hreinsuð af ásökunum
- Karl á áttræðisaldri í haldi
- Frystir með kvöldinu
- Handtekinn vegna sprengjumáls
- Náð samkomulagi um vaxtabætur
- Hnífstungumaður áfram í gæsluvarðhaldi
- Á fimmta tug umsókna um starf
-
Keppt í hugviti
- Greiddi barni fyrir vændi
- Margt um manninn á Bessastöðum
- Tilraunaverkefni í vinnumiðlun
- Samstaða gerir athugasemd við Samstöðu
- Vilja framkvæmdastjóra á skrifstofuna
- Stefna að opnun í Skálafelli
Innlend málefni
- Hallgrímur SI fórst undan ströndum Noregs
- Landsdómur
- Bæjarstjórnarmeirihluti sprunginn í Kópavogi
- Baldur Guðlaugsson - dómsmál
- Ólga innan VG
Svipaðar fréttir
- Laugardagur, 24. apríl 2010, Innlent Hraun bræðir sér leið
- Miðvikudagur, 7. apríl 2010, Innlent Batnandi veður við gosstöðvar
- Miðvikudagur, 24. mars 2010, Innlent „Þetta er rosalegt“
- Sunnudagur, 28. mars 2010, Innlent Nýr hraunfoss í Hrunagili
- Fimmtudagur, 8. apríl 2010, Innlent Tilgangurinn að sýna fram á hættuna
-
Fréttaflutningur aðeins dropi í hafið
-
Tekið á móti Suu Kyi sem rokkstjörnu
-
Veður hamlar aðgerðum á strandstað
-
Íranar fagna byltingarafmæli
-
Rómarborg snæviþakin
-
Ofbeldið í Sýrlandi eykst
-
Adele í viðtali við 60 mínútur
-
Ingvar: Við verðum að vinna síðustu þrjá






































