Flugfélagið flýgur innanlands

Flugfélag Íslands hefur hafið flug á ný frá Reykjavíkurflugvelli.
Flugfélag Íslands hefur hafið flug á ný frá Reykjavíkurflugvelli. Ómar Óskarsson

Reykjavíkurflugvöllur hefur verið opnaður, að því er segir í fréttatilkynningu frá Flugfélagi Íslands. „Flugfélag Íslands flýgur sjónflug. Veðurskilyrði eru hagstæð. Miðað við verðurspá í dag, föstudaginn 23.apríl að þá reiknar Flugfélag Íslands með að halda uppi áætlun.“

Flugfélag Íslands flaug til Akureyrar frá Reykjavík klukkan 9 í morgun og til Ísafjarðar klukkan 9.15. Brottför til Egilsstaða er áætluð klukkan 11 og athuga á með flug til Vestmannaeyja klukkan 15.45.

Flugfélagið bendir farþegum á að skoða heimasíðu Flugfélags Íslands og textavarp RÚV til að fylgjast með stöðu á hverju flugi fyrir sig.


mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert