Sérstakir hverfavefir opnaðir

Hanna Birna Kristjánsdóttir opnar vefsvæðið í dag.
Hanna Birna Kristjánsdóttir opnar vefsvæðið í dag.

Hanna Birna Kristjánsdóttir, borgarstjóri, opnaði tíu nýja hverfavefi þar sem búar geta nálgast  upplýsingar um sérstöðu hvers hverfis, lýðfræði, nýlegar framkvæmdir, yfirstandandi framkvæmdir, niðurstöðu íbúakosningarinnar, hugmyndir íbúa um aðalskipulag, starfsemi hverfislögreglu og fleira.

Á vef Reykjavíkur er haft eftir Hönnu Birnu, að markmiðið með þessu verkefni  snúist um að bæta nærþjónustu við íbúa og gefa þeim enn fleiri tækifæri til þátttöku í ákvörðunum sem snúa að þeirra hverfum.

Vefina er að finna á vefslóðinni hverfidmitt.is.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert