Black: Bankarnir sekir um glæpi

Bankarnir voru ekkert annað en svikamylla að sögn Williams Black.

Bankarnir voru ekkert annað en svikamylla að sögn Williams Black.

Bandarískur lögfræðingur, William Black, sem sérhæfir sig í hvítflibbaglæpum, segir að rannsóknarskýrsla Alþingis sé ágæt og í sumum tilvikum mjög góð. Hins vegar vanti upp á sé að réttra spurninga sér spurt. Kennslubók í því hvernig stóru bankarnir þrír ástunduðu bókhaldsbrot og svik. Starfsemi bankanna hafi ekki verið neitt annað en svikamylla (Ponzi-like scheme).  Black var gestur í Silfri Egils í dag.

Allt gert til að búa til sýndarhagnað

Hvernig bankarnir lánuðu fyrir kaupum á hlutabréfum í bönkunum og hvernig helstu eigendur og vinir fengu endalaus lán. Allt hafi verið gert til þess að búa til sýndarhagnað og um leið auka hag helstu eigenda. Ef slíkt fær að halda áfram lengi þá er ekki nóg með að viðkomandi fyrirtæki fari í þrot heldur allt þjóðfélagið.

Black óttast að ef ekkert verði að gert muni fleiri Íslendingar yfirgefa landið þar sem byrðarnar sem lagðar eru á íbúanna séu svo miklar. Hann varar við því að ekki verði hægt að endurheimta allt það fé sem hvarf en byggja þurfi upp traust.

Seldu djöflinum sálu sína

Hann segir að skýrslan sýni fram á það að stjórnvöld á Íslandi hafi ekki verið neitt annað en klappstýrur fyrir útrásarvíkingana. Hann gagnrýnir skýrslu Frederic S. Mishkin og Tryggva Þórs Herbertssonar harðlega en í skýrslu sem þeir skrifuðu fyrir Viðskiptaráð árið 2006 segir að líkurnar á „algeru fjárhagslegu hruni“ á Íslandi séu „sáralitlar“. Black segir að hér hafi menn selt djöflinum sálu sína. 

Black telur að einhver mál sem sérstakur saksóknari muni höfða gegn þeim sem brutu af sér eigi að vinnast. Ef það gerist ekki sé eitthvað að annað hvort íslenskum lögmönnum eða dómskerfinu. 

Áður en Black kom í viðtal við Egil í dag var Þorvaldur Gylfason gestur Egils Helgasonar í Silfrinu. Hann sagðist vilja fá Black til þess að aðstoða við rannsókn sérstaks saksóknara líkt og Eva Joly gerir. Egill spurði Black út í þetta og sagðist Black vera meira en reiðubúinn til þess en sagði jafnframt að óvíst væri að hjálp hans yrði þegin vegna þess hve hart hann gagnrýni hluti hér. 

Black segir að viðhorfið til fjármálafyrirtækjanna og starfsemi þeirra hafi breyst mikið undanfarna mánuði í Bandaríkjunum. Verið sé að rannsaka starfsemi bankanna og hvort þeir hafi gerst sekir um glæpsamlegt athæfi. Hann hefur undanfarið komið fyrir bandaríska þingnefnd sem rannsakar hrun Lehman Brothers. Sífellt fleirum ofbjóði hvernig fjármálafyrirtækin hegðuðu sér og „f- orðið" fræga sé notað æ fleiri sérfræðingum.

Upplýsingar um Black á Wikipedia

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Ungu Evrópu dreift til ungs fólks

15:14 „Mikilvægt er að vanmeta ekki þátt ungmenna í þeirri umræðu sem nú stendur yfir um aðildarumsókn Íslands að Evrópusambandinu,“ segir í fréttatilkynningu frá Ungum Evrópusinnum. Meira »
Brian Ferry á tónleikum

Brian Ferry lendir

15:10 Söngvarinn Brian Ferry lendir í Keflavík nú síðdegis. Að sögn Steinþórs Helga Arnsteinssonar dvelst Ferry hér fram á þriðjudag og hlakkar mikið til að sækja landið heim. Meira »

Kæru vegna sameiningar skóla hafnað

Úr myndasafni.
15:41 Innanríkisráðuneytið hefur hafnað kröfu sem því barst í júní á síðasta ári um að sameiginlegar skólastofnana í Reykjavík yrði dæmdar ólögmætar en úrskurðurinn barst kærandanum, Sigríði Jónsdóttir, í gær. Meira »

Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað

Blíðviðri á Egilsstöðum
14:24 Milt og hlýtt veður er um austanvert landið. Hvassara og bleyta á Vestfjörðum. Rigningu er spáð um mestallt land í kvöld en lægir yfir nóttina og birtir til á morgun. Meira »

Segir LA hafa fengið tekjurnar

Hús Leikfélags Akureyrar.
13:12 Það er rangt að tekjur af miðasölu Leikfélags Akureyrar af sýningunni Gulleyjunni, sem var í samstarfi við Borgarleikhúsið, hafi runnið suður til Reykjavíkur. LA fékk allar tekjur af sýningunni í vetur. Þetta segir Eiríkur Haukur Hauksson, framkvæmdastjóri Leikfélags Akureyrar. Hann segir fréttaflutning, þar sem annað er gefið í skyn, óheppilegan bæði fyrir LA og Borgarleikhúsið. Meira »

Evróvisjón með viðbættu tísti

Svona mun skjárinn líta út hjá þeim sem eru með myndlykil frá Vodafone og stilla ...
14:35 Þeir Evróvisjónáhorfendur sem vilja sjá skoðanir annarra Íslendinga á frammistöðu keppenda geta í kvöld stillt á sérstaka sjónvarpsrás, þar sem tíst-straumur birtist með útsendingu Ríkisútvarpsins. Meira »

Hvítasunnuhelgin fer vel af stað

Umferð á Vesturlandsvegi
13:34 Hvítasunnuhelgin, fyrsta stóra ferðahelgi sumarsins, hefur farið vel af stað um land allt og umferð gengið áfallalaust. Ýmislegt er í boði um landið m.a. hópreið hestamanna á Selfossi, blúshátíð á Hvolsvelli, vísindaveisla á Ísafirði og á Skagaströnd verða listamenn með opið hús. Meira »

Þúsund hesta hópreið á Selfossi

Reiknað er með allt að þúsund hrossa hópreið á Selfossi.
12:42 Hross og reiðmenn fjölmenna á Selfoss í dag en vígja á nýja reiðhöll, Sleipnishöllina, í bænum.  Meira »

Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar

Jón Bjarnason alþingismaður
12:09 Jón Bjarnason, þingmaður Vinstri grænna og fyrrverandi landbúnaðar- og sjávarútvegsráðherra, segir framgöngu Landsbankans vera eins og stríðsrekstur og að hún gangi þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar í byggðamálum. Jón hefur farið fram á að sérstök umræða fari fram á Alþingi um málið sem allra fyrst. Meira »

Bangsi fer með í Græna herbergið

Greta Salóme Stefánsdóttir á æfingu í Kristalshölllinni í Bakú í gær.
09:59 Íslenski Evróvisjónhópurinn býr sig nú undir lokaæfinguna í Kristalshöllinni í Bakú. Þau eru ekki hjátrúarfull, en segjast hafa tröllatrú á bangsa sem prýddur er íslenska fánanum. Þau munu halda frá Aserbaídsjan skömmu eftir að keppni lýkur. Meira »

Þarf meiri tíma til að finna lausn

Í Fossvogskirkjugarði.
10:01 „Við vorum með frumvarp um kirkjugarðana á okkar vinnsluborði en það reyndist þurfa meiri skoðunar við innan stjórnsýslunnar,“ segir Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra um fjárhagsvanda kirkjugarða landsins. Meira »

Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta

09:49 Í vor gafst íslenskum dýralæknum tækifæri til að auka við þekkingu sína í greiningu og meðhöndlun á tannvandamálum og öðrum meinum í munni hesta. Auk lifandi hesta með og án þekktra vandamála var unnið með hrosshausa sem safnað hafði verið í sláturhúsi. Meira »

Nefnd fer yfir vegi og skipulag

Hugmyndir að Svínavatnsleið.
09:01 Í ráði er að skipa nefnd til að fara yfir lög og hlutverk sveitarfélaga og ríkisins við ákvarðanir um lagningu vega þar sem ágreiningur er á milli Vegagerðarinnar og sveitarfélaga. Meira »

Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti

07:43 Reykjavíkurborg hyggst auka útgjöld til hreinsunar á veggjakroti á þessu ári. Undanfarin ár hefur hreinsun að mestu verið innan miðborgarinnar en úthverfin hafa setið á hakanum. Meira »

Kostnaður við komu 4 milljónir

Wen Jiabao og Jóhanna Sigurðardóttir á Geysi
05:30 Ekki hefur verið sótt um aukafjárveitingu vegna kostnaðar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu við heimsókn kínverska forsætisráðherrans Wens Jiabaos. Meira »

Lét dólgslega og stökk í sjóinn

08:21 Karlmaður á þrítugsaldri gisti fangageymslur lögreglunnar á Akureyri í nótt, eftir að hafa látið dólgslega í miðbæ bæjarins og lagst að því búnu til sunds í sjónum. Maðurinn var afar ölvaður að sögn lögreglu. Meira »

Störfum í bönkum fækkað um 2.000

Friðbert Traustason. Formaður Sambands íslenskra bankamanna .
05:30 Störfum hjá fjármálafyrirtækjum hefur fækkað um 2.000 frá því vorið 2008. Útibúum bankanna hefur fækkað um helming á sama tíma. „Þetta hefur verið hreint hörmungarástand,“ segir Friðbert Traustason, formaður Samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja. Meira »

Flugfarþegi lak plötu á netið

Umslag plötunnar Valtari.
05:30 Áttunda og nýjasta plata Sigur Rósar, Valtari , kom út í gær en hún er fyrsta breiðskífa sveitarinnar frá því Með suð í eyrum við spilum endalaust kom út fyrir fjórum árum. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
GOLFPARADÍS Í VENTURA,SÓLSKIN Í ORLANDO
Til leigu huggulegt hús á frábærum stað í Orlando,18h.golfvöllur/ódýrt spil,sund...
Toyota Corolla Touring 4x4 árg 2000 verð 499.000
Toyota Corolla Touring 4x4 árg 2000 ekinn 166.000 km Tilboðsverð 499.000 staðgr...
Toyota Avensis 1800, árg. 2006 5 gíra.
Fæst á aðeins 1200 þús. stgr. Ek. 175 þús. Gott lakk og vel með farinn bíll. E...
Slöngurbátur 3,4 m Quicksilver
Til sölu quicksilver 3.4 m slöngurbátur í toppstandi. Lítið notaður. Gerður fyr...
 
Hagvangur
Önnur störf
Húsvörður Upplýsingar veitir: Kristín ...
Auglýsing byggðakvóti

Auglýsing vegna úthlutunar byggðakvó...
Grunn og leikskólakennarar
Grunn-/framhaldsskóla
Grunn- og leikskólakennarar ...
Breyting á deiliskipulagi á húsavík

Norðurþing Skipulags- og byggingarfullt...