Iðnaðarráðherra fundar með Þingeyingum

Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra
Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra mbl.is/Árni Sæberg

Verkefnisstjórn um orkunýtingu og atvinnuuppbyggingu í Þingeyjarsýslum heldur opinn fund með Katrínu Júlíusdóttur iðnaðarráðherra og Herði Arnarsyni forstjóra Landsvirkjunar í dag kl. 17:15 á Fosshótel Húsavík.

Farið verður yfir vinnu verkefnisstjórnarinnar sem skipuð var í nóvember 2009 á grundvelli sameiginlegrar viljayfirlýsingar iðnaðarráðherra, Norðurþings, Skútustaðahrepps og Þingeyjarsveitar um samstarf á sviði orkurannsókna, orkunýtingar og atvinnuuppbyggingar í Þingeyjarsýslum, að því er segir í tilkynningu.

Verkefnisstjórn var falið að leita mögulegra samstarfsaðila um atvinnuuppbyggingu sem byggi á hagnýtingu orkunnar frá háhitasvæðunum í Þingeyjarsýslum.

Fyrsta áfanga skyldi ljúka í vor. Niðurstöður hans verða nú kynntar opinberlega ásamt hugmyndum um næstu skref.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert