18 ára fékk 100% lán til að kaupa rándýran bíl

Árni Páll Árnason, félags- og tryggingamálaráðherra.
Árni Páll Árnason, félags- og tryggingamálaráðherra. mbl.is/Ómar

Árni Páll Árnason, félagsmálaráðherra, sagði þegar hann mælti á Alþingi í kvöld fyrir frumvarpi um skilmálabreytingar gengistryggðra bílalána, að fyrir hrun hefðu samningar við einstaklinga um einkaleigu eða kaupleigu hefðu oft verið gerðir án þess að eignaleigufyrirtækin könnuðu gjaldfærni þeirra sem lánin tóku.

„Á borði mínu er eitt hörmulegt mál af þessum toga af 18 ára pilti sem tók 100%  lán hjá eignaleigufyrirtæki til að kaupa dýra BMW-bifreið.  Drengurinn hafði aldrei tekjur til að standa undir afborgunum af láninu. Það má auðvitað spyrja sig hvað hann var að hugsa og það má gera ríkar kröfur til hans að hafa tekist á hendur slíkar óraunhæfar skuldbindingar. En það er fjarri mínum skilningi á réttlæti, að sá sem veitti lánið beri enga ábyrgð. Og það er ekki í samræmi við minn réttlætisskilning, að fyrirtæki sem tók þá ákvörðun að lána 18 ára unglingi fyrir rándýrri bifreið án þess að kanna hvort hann hefði einu sinni vinnu, geti átt siðferðilega eða lagalega kröfu á aflahæfi hins unga manns án nokkurra takmarkana," sagði Árni Páll. 

Hann sagði að markmið frumvarpsins væri ekki að létta ábyrgð af þeim sem tóku lánin; þeir yrðu aldrei betur settir en  ef þeir hefðu tekið verðtryggt lán í upphafi í stað gengistryggðra lána „og það vitum við að eru engin kostakjör," sagði Árni Páll.

Frumvarpið í heild 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert