Þýsk flugsveit komin

Ein af F-4 flugvélum þýska lofthersins yfir Keflavíkurflugvelli í dag.
Ein af F-4 flugvélum þýska lofthersins yfir Keflavíkurflugvelli í dag. vf.is/Hilmar Bragi

Flugsveit frá þýska flughernum sinnir  loftrýmisgæslu Atlantshafsbandalagsins hér á landi frá 7.-25. júní. Notaðar eru sex F-4 orrustuþotur og komu þær til Keflavíkurflugvallar um hádegisbil í dag.

Um 140 liðsmenn þýska flughersins verða  á Íslandi vegna verkefnisins. Þetta er í fyrsta sinn sem Þjóðverjar sinna loftrýmisgæslu hér á landi en sveitin er hér stödd í boði íslenskra stjórnvalda og starfar í samræmi við loftrýmisgæsluáætlun Atlantshafsbandalagsins fyrir Ísland.

Fyrstu vikuna munu orrustuþoturnar æfa lendingar á Keflavíkurflugvelli og aðflug að Akureyrarflugvelli og Egilsstaðaflugvelli.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert