SFR: Ætlar Árni Páll í stríð?
Árni Stefán Jónsson, formaður SFR segir að frysting launa opinberra starfsmanna gangi einfaldlega ekki upp sem sparnaðarleið. Spyr hann hvort félagsmálaráðherra, Árni Páll Árnason, ætli í stríð við opinbera starfsmenn.
í grein sem birtist í Fréttablaðinu í morgun lýsir Árni Páll því yfir að ein aðferðin til sparnaðar fyrir ríkið sé að frysta laun opinberra starfsmanna í þrjú ár. „Hann gengur svo langt að segja að slík aðferð sé jafnvel nauðsynleg til að verja velferðarkerfið; þjónustuna við aldraða, fatlaða o.s.frv. Gerir félagsmálaráðherra sér grein fyrir því hverjir það eru sem starfa við það dagsdaglega að verja velferðarkerfið? Það eru einmitt opinberir starfsmenn sem þiggja fyrir það laun á bilinu 190-250 þúsund," segir í tilkynningu frá SFR.
Árni Stefán Jónsson, formaður SFR segir að frysting launa opinberra starfsmanna gangi einfaldlega ekki upp sem sparnaðarleið, það viti hver maður að nú sé markmiðið að efla efnahagskerfið en hugmyndir félagsmálaráðherra ganga þvert á það, segir Árni Stefán.
Frysting launa muni kalla á samdrátt í hagkerfinu og það sé algjörlega út í hött að ræða launamál á þessum nótum, án allrar tengingar við aðra þróun í samfélaginu.
Árni Stefán segir það reyndar vekja furðu að þessi orð séu látin falla núna mitt í umræðum milli aðila um fjárlög næsta árs. Stéttarfélög opinberra starfsmanna og ríki séu nú að undirbúa umræðu um fjárlagagerð og svona hótanir séu alveg úr takti við yfirlýsta stefnu ríkisstjórnarinnar. Það er á mörkunum að það sé hægt að taka mark á svona gaspri, segir Árni Stefán. Það sé með öllu forkastanlegt að nota orð eins og þjóðarsátt um frystingu launa opinberra starfsmanna, segir í tilkynningu frá SFR.
„Rétt er að benda á að samkvæmt nýlegri frétt frá Hagstofu Íslands hækkuðu laun á almennum vinnumarkaði um 1,3% að meðaltali á fyrsta ársfjórðungi 2010 en laun opinberra starfsmanna hækkuðu einungis um 0,3% á sama tíma.
Ef teknar eru tölur frá fyrra ári má sjá að laun á almennum vinnumarkaði hækkuðu um 4,4% en laun opinberra starfsmanna hækkuðu um 1,4% á sama tíma," segir í tilkynningu.
Bloggað um fréttina
-
Páll Vilhjálmsson Stríðið um sársauka kreppunnar -
Börkur Hrólfsson Það vitlausasta ! -
Ásdís Sigurðardóttir Árni Páll er í stríði sem hann er búinn að ... -
Haraldur Haraldsson SFR: Ætlar Árni Páll í stríð?/svo við tölum bara Íslensku ...
Innlent »
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Föstudagur, 25.5.2012
- Segir stuðning við Kanadadollar
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
Svipaðar fréttir
- Föstudagur, 23. október 2009, Innlent Snorri hættir við framboð
- Fimmtudagur, 10. júní 2010, Innlent Saka Árna Pál um aðför gegn kvennastéttum
- Mánudagur, 9. maí 2011, Innlent Viðræður á fulla ferð
- Mánudagur, 13. september 2010, Innlent Þrengt meira að almannaþjónustu
- Þriðjudagur, 13. október 2009, Innlent Býður sig fram í formannsembætti BSRB
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































