„Erfitt að gleðja menn ef þetta gleður þá ekki“

Ingi Fróði Helgason leiðsögumaður í Haffarðará, hampar 100 cm löngum, 20 punda, nýgengnum laxi sem ... stækka

Ingi Fróði Helgason leiðsögumaður í Haffarðará, hampar 100 cm löngum, 20 punda, nýgengnum laxi sem franski veiðimaðurinn Richard Charbonneau veiddi á gárutúpu á veiðistaðnum Hanlons. mbl.is

Morgunblaðið Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is

„Hringdu í mig á eftir, við erum að landa stórum laxi,“ sagði Andrés Eyjólfsson frá Síðumúla, leiðsögumaður við Þverá í Borgarfirði, þegar blaðamaður hringdi í hann í gærmorgun. Þegar við töluðum aftur saman skömmu síðar kom í ljós að þetta hafði verið 84 cm löng hrygna, mjög fallegur fiskur að sögn Andrésar.

Hann var síðustu daga að fylgja veiðimönnum með tvær stangir og þeir fengu fleiri stóra, 90, 85 og 84 cm langa, auk fjölda smálaxa. Veiðin hefur líka verið frábær í Þverá og á efri hluta árinnar, í Kjarrá, en í gær höfðu veiðst tæplega 1600 laxar.

„Það er fiskur allsstaðar, alveg fádæma góð veiði,“ sagði Andrés. „Í fyrra fórum við yfir 1000 laxa markið 27. júlí, nú vorum við 20 dögum fyrr að ná því.

Það er svo mikið af fiski að það liggur orðið lax í nær hverjum hyl og staðir sem venjulega gefa ekki fiska fyrr en seint í júlí eru orðnir virkir,“ sagði hann.

Og eru veiðimennirnir þá ekki lukkulegir?

„Jú, þú getur nærri. Það er erfitt að gleðja menn ef þetta gleður þá ekki!“

Veiðin í Þverá og Kjarrá var vægast sagt frábær í síðustu viku, eftir rigningarnar, en þá veiddust dag eftir dag yfir 100 laxar. Þá voru hollin í Þverá, þar sem veitt er á sjö stangir, með 105, 164 og 154 laxa.

Tvö 300 laxa holl í Norðurá

Tvær aðrar ár voru í síðustu viku komnar með yfir 1000 laxa, Blanda og Norðurá. Þessi mikla veiði í Blöndu er ekki síst athyglisverð í því ljósi að lungi aflans er af neðsta svæðinu og þar er einungis veitt á fjórar stangir. Stórlaxastofn árinnar er sterkur og mjög stórir fiskar innan um, eins og sést á því að í gær bárust fréttir af því að 107 cm langur lax hefði veiðst á þriðja svæði. Mun þar vera þriðji 107 cm laxinn sem veiðist hér á landi í sumar.

„Það hefur verið flottur gangur í veiðinni hér,“ sagði Guðmundur Viðarsson matsveinn við Norðurá í gær og bætti við vatnsstaðan, mesta áhyggjuefni veiðimanna á Vesturlandi þetta sumarið, væri góð: „hvorki of mikið né of lítið.

Rigningin um daginn gaf okkur ekkert smá-flotta líflínu. Tvö holl þar á eftir tóku 600 laxa. Það er ekki algengt en svona getur veiðst hér á besta tíma þegar laxinn er að ganga,“ sagði Guðmundur. Hann bætti við að laxinn væri orðinn dreifður um alla á og inn á milli meira af stórum laxi en sést hefur í Norðurá í mörg ár. „Menn eru að fá upp undir 90 cm laxa. Norðurá er líka „blá“ af laxi þessa dagana,“ sagði Guðmundur.

74 laxa dagur í Miðfirðinum

„Veiðin er komin rétt yfir 600 laxa, sem er mjög gott,“ segir Jóhann Birgisson leiðsögumaður í Miðfjarðará. Í fyrra var metveiði í ánni en veiðin fór samt mun rólegar af stað; 7. júlí í ár höfðu veiðst 390 laxar á sex stangir í Miðfirðinum en 61 á sama tíma í fyrra. „Nú er laxinn kominn upp í efstu staði og var kominn þar strax í opnun. Það rigndi duglega á dögunum og nú er prýðis vatn í ánni.“

Jóhann segir hlutfall stórlaxa í Miðfirðinum vera um 40 prósent það sem af er. „Það er ótrúlega gott hlutfall af tveggja ára laxi. Búið er að veiða 25 laxa sem eru yfir 90 cm langir.“

„Besti veiðidagurinn í sumar gaf 74 laxa, þar var feikigóður dagur,“ segir Rafn Valur Alfreðsson leigutaki Miðfjarðarár. „Þá var bæði sjatnandi vatn eftir rigningarnar og hörku-göngur í ána. Aðstæður voru erfiðar, mikill vindur, en frábær veiði. Þetta hefur verið alveg brilljant! Nú erum við svo farnir að sjá alvöru smálaxagöngur, sérstaklega í Vesturánni.“

Annar laxinn var 103 cm

Stórlaxasögurnar berast víða að þetta sumarið. Á laugardag veiddist í Klingenberg í Laxá í Kjós hængur sem var sagður „spikfeitur“ og 103 cm langur. Töldu menn hann hafa vegið 22 til 24 pund. Var þetta annar laxinn sem þessi veiðimaður fangar en hann fékk maríulaxinn í Kjósinni daginn áður. Tók laxinn einkrækju og stóð viðureignin yfir í á aðra klukkustund. Á vef SVFR segir að tveir leiðsögumenn hafi verið viðstaddir og telji laxinn af gamla Kjósarstofninum, sveran og tilkomumikinn.

Á vef SVFR segir ennfremur að enn fjölgi veiddum stórlöxum í Laxá í Aðaldal. Einn 22 punda veiddist um helgina á veiðistaðnum Knútsstaðatúni og annar 20 punda kom upp við Syðri-Hólma á Hólmavaðsveiðum.

„Míkró-hits og örflugur“

„Hér gildir bara að nota míkró-hits og örflugur, vatnið er orðið svo lítið,“ sagði leiðsögumaður við laxveiðiá á Vesturlandi í gær. Áin hefur lítið sem ekkert notið rigninga á síðustu vikum og vatnið er orðið lítið og glært – ekki ósvipað því sem sést í fyrri hluta ágústmánaðar á venjulegu sumri.

„Laxinn tekur áfram og tekur vel, en það þýðir ekkert annað en að bjóða honum eitthvað rosalega smátt,“ sagði maðurinn.

Hvar sem laxveiðimenn koma saman þessa dagana er umræðuefnið laxafjöldinn í ánum, stóru laxarnir sem veiðast svo víða – og vatnið. „Hér er fínt vatn,“ sagði einn viðmælandi í veiðihúsi í gær, „vatnið er mátulegt,“ sagði annar. Andrés Eyjólfsson í Þverá sagði ána enn njóta rigningarinnar í síðustu viku, hún væri aðeins skoluð og það hjálpaði til, þá tæki laxinn betur.

Viðmælandi sem er á leið í veiði í Dölunum í lok mánaðarins var fyrir vestan um helgina, sá marga laxa í ánni en sá líka hvað vatnið í henni féll hratt. „Þetta gæti orðið erfitt ef ekki rignir aftur.“ Sama sagan og svo víða.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Innlent »

Íslenska lagið fékk 46 stig

22:33 Ísland fékk samtals 46 stig í Evróvisjónkeppninni í kvöld. Flest stig fékk íslenska framlagið, sem flutt var af þeim Jónsa og Grétu Salóme, frá Finnum eða sjö stig en næst mest frá Dönum, Ungverjum og Eistum eða sex stig. Meira »

Svíar unnu Evróvisjón 2012

22:17 Svíþjóð er sigurvegari Evróvísjón 2012 en sænska framlagið fékk samtals 372 stig og var sigur þess mjög afgerandi. Svíar héldu forystunni nánast allan tímann sem stigagjöfin fór fram. Meira »

Manni bjargað úr Ölfusá

Frá Selfossi. Úr myndasafni.
22:14 Lögreglan á Selfossi kom karlmanni til bjargar um klukkan níu í kvöld eftir að hann hafði fallið í Ölfusá rétt ofan við Selfosskirkju. Að sögn lögreglunnar var hún að svipast eftir manninum þegar sjúkraliðsmaður kom auga á manninn þar sem hann hékk á klettanös. Meira »

Fyrstur karla til að lesa stigin

Matthías Matthíasson, söngvari.
21:30 Atkvæðagreiðslunni í Evróvísjón er nú lokið og stigagjöfin er nú hafin. Það er Matthías Matthíasson, söngvari, sem mun mun lesa stigin frá Íslandi en þetta er í fyrsta sinn sem karlmaður gerir það fyrir hönd Íslendinga. Meira »

„Mannréttindi varða okkur öll“

20:47 „Góða skemmtun í kvöld kæru Íslendingar. Við gerum okkar allra besta til að skila okkar sem best á sviðinu og því sem við höfum unnið að sleitulaust síðan í febrúar,“ sagði Gréta Salóme á Facebook-síðu sinni í dag. Meira »

Fyrstu stigin frá Slóvenum

22:01 Fyrstu stigin sem Ísland hlýtur í Evróvísjónkeppninni í kvöld komu frá Slóvenum en þeir gáfu íslenska framlaginu fjögur stig. Slóvenía er 19 landið til þess að gefa stig. Meira »

Versló brautskráir 311 nemendur

Frá brautskráningu Verzlunarskóla Íslands í dag.
21:14 Verzlunarskóla Íslands var slitið í 107. sinn í dag en 311 nemendur brautskráðust að þessu sinni með stúdentspróf, 182 stúlkur og 129 piltar. Þar af komu 301 nemandi úr dagskólanum og 10 úr fjarnámi. Meira »

Stóðu sig vel á sviðinu

19:40 Flutningur íslenska framlagsins í Evróvísjónkeppninni tókst mjög vel á sviðinu í Kristalshöllinni í Bakú höfuðborg Aserbaídsjan og var þeim Jónsa og Grétu Salóme fagnað mjög af þeim fjölmörgu áhorfendum sem fylla salinn í höllinni. Meira »

Sexfaldur pottur næst

19:29 Enginn hlaut fyrsta vinninginn í Lottói kvöldsins en fjórir hluti annan vinning og fær hver vinningshafi 298.370 krónur í sinn hlut. Tölur kvöldsins voru að þessu sinni 2, 10, 11, 14 og 31 og bónustalan 34. Meira »

40 nemendur útskrifaðir á Húsavík

Stúdínan Inga Ósk Jónsdóttir með verðlaunin.
18:26 Það voru hlýir vorvindar, sól og blíða á Húsavík í morgun þegar 40 nemendur brautskráðust frá Framhaldsskólanum á Húsavík sem slitið var í 25. skipti. Athöfnin fór að venju fram í Húsavíkurkirkju en 24 nemendur brautskráðust með stúdentspróf og 17 með próf af starfsnámsbrautum. Meira »

545 þúsund kílómetrar að baki

18:57 Þátttakendur í átakinu „Hjólað í vinnuna“ hafa nú lagt að baki samtals 545.487 kílómetra samkvæmt heimasíðu átaksins en það hófst 9. maí síðastliðinn og stendur fram á næstkomandi þriðjudag 29. maí. Meira »

Hera, Eyfi og Helga spá í spilin

Hera Björk - Evróvisjónfari ´10
17:59 Það hefur eflaust ekki farið fram hjá mörgum að Ísland keppir í aðalkeppni Evróvisjón 2012 í kvöld. Mbl.is hafði samband við nokkrar valinkunnar Júróvisjónhetjur og kannaði hvernig þeim litist á. Meira »

Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu

Ligita Solomenceva sem lögreglan leitar að.
17:44 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Ligitu Solomenceva, 42 ára konu frá Lettlandi. Fram kemur í tilkynningu frá lögreglunni að síðast hafi verið vitað um ferðir hennar við Meðalfellsvatn sunnudaginn 13. maí síðastliðinn. Meira »

Fjórar finnskar þotur til Íslands

F-18 Hornet orrustuþota.
16:29 Finnar áforma að taka að sér loftrýmisgæslu á Íslandi í þrjár vikur árið 2015 og senda hingað til lands í því skyni fjórar F-18 Hornet orrustuþotur og 50 manna starfslið. Þoturnar verða sendar hingað til lands í tengslum við norrænt samstarf um loftrýmisgæslu við Ísland. Meira »

Ungu Evrópu dreift til ungs fólks

15:14 „Mikilvægt er að vanmeta ekki þátt ungmenna í þeirri umræðu sem nú stendur yfir um aðildarumsókn Íslands að Evrópusambandinu,“ segir í fréttatilkynningu frá Ungum Evrópusinnum. Meira »

Framboð auglýst innan viku

17:06 Ráðuneyti innanríkismála mun innan viku ljúka yfirferð framlagðra gagna þeirra einstaklinga sem boðið hafa sig fram til embættis forseta Íslands og í kjölfar þess birta auglýsingu um það hverjir verða í framboði í forsetakosningunum sem fram fara 30. júní næstkomandi. Meira »

Kæru vegna sameiningar hafnað

Úr myndasafni.
15:41 Innanríkisráðuneytið hefur hafnað kröfu sem því barst í júní á síðasta ári um að sameiginlegar skólastofnana í Reykjavík yrði dæmdar ólögmætar en úrskurðurinn barst kærandanum, Sigríði Jónsdóttir, í gær. Meira »

Bryan Ferry lendir

Bryan Ferry á tónleikum
15:10 Söngvarinn Bryan Ferry lendir í Keflavík nú síðdegis. Að sögn Steinþórs Helga Arnsteinssonar dvelst Ferry hér fram á þriðjudag og hlakkar mikið til að sækja landið heim. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
GLÆSILEG KENNSLUBIFREIÐ
Glæsileg kennslubifreið Subaru XV 4WD - árg. 2012. Þ...
FÁÐU RÁÐGJAFA Í HEIMSÓKN - FRÍTT
BETRI REKSTUR, bókhald og rekstrarráðgjöf sími 77 50 200 og 519 7585 www.betrir...
FÖNDURSETT Í ÚRVALI
Föndursett í úrvali. Tómstundahúsið, Nethyl 2, sími 587 0600. www.tomstundahusid...
VOLVO S60 TURBO
Volvo S60 Turbo 20v . Nýskr. 2/2005, ekinn 142 þ. km, bensín...
 
Starfsmaður í mötuneyti
Önnur störf
Starfsmaður í mötuneyti Morgunblaðið ...
Þjónustufulltrúi.
Skrifstofustörf
Þjónustufulltrúi Fyr...
Kynning skipulagsmála í rangárþingi eystra

Kynning skipulagstillöguí Rangárþin...
5 mál
Nauðungarsala
Uppboð Einnig birt á www.naud...