267 luku Laugavegshlaupinu

279 lögðu af stað frá Landamannalaugum í morgun.
279 lögðu af stað frá Landamannalaugum í morgun. mbl.is

Alls náðu 267 að ljúka Laugavegshlaupinu sem fram fór í dag. 279 lögðu af stað frá Landmannalaugum í morgun en 12 urðu frá að hverfa. Veðrið var gott að sögn mótshaldara og voru keppendur ánægðir með færið á leiðinni. Mikið sólskin á hluta leiðarinnar gerði hins vegar hlaupurum erfitt fyrir.

Sigurvegari í karlaflokki var Þorlákur Jónsson og í kvennaflokki Helen Ólafsdóttir.

Helen sló brautarmet í kvennaflokki þegar hún kom í mark á tímanum 5:21:12. Gamla metið átti Bryndís Erntsdóttir en það var 5:31:15.

Þorlákur var á tímanum 4:48:01 sem er um hálftíma frá metinu sem Þorbergur Ingi Jónsson setti í hlaupinu 2009. Helgi Júlíusson, sem var í öðru sæti, leiddi hlaupið um tíma en missi Þorlák framúr sér á síðasta hluta leiðarinnar.

Fyrstu karlar
1.      Þorlákur Jónsson 4:48:01
2.      Helgi Júlíusson 4:49:43
3.      Valur Þórsson 4:54:09

Fyrstu konur
1.      Helen Ólafsdóttir 5:21:12
2.      Hólmfríður Vala Svavarsdóttir 5:28:10
3.      Sif Jónsdóttir 5:49:15

Nánari úrslit eru komin á heimasíðu hlaupsins.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert