Dapurleg niðurstaða
„Það er afskaplega dapurlegt að kjaradeilan sé komin í þetta horf,“ segir Jón Viðar Matthíasson, slökkviliðsstjóri á Höfuðborgarsvæðinu. Miðað við núverandi stöðu sé ólíklegt að verkfallið fáist afstýrt. Menn haldi þó í vonina um óvænta sátt.
Verði af fyrirhuguðu verkfalli mun aðeins neyðartilfellum sinnt. Aðeins 21 maður verður á vakt í einu og engin bakvakt tiltæk. Slökkviliðs og sjúkraflutningamenn munu skila boðtækjum.
„Það verður mjög erfitt fyrir mig að boða menn í stórútköll. Venjulega hafa liðsmenn okkar gsm síma sem auðveldar okkur að ná í þá,“ segir Jón Viðar. Slökkviliðsmenn muni skila öllum boðtækjum á föstudaginn. Þar af leiðandi muni viðbragðstími og mannafli skerðast komi til stórútkalla.
Jón Viðar segist ætla að setjast niður með sínum mönnum og fara yfir viðbragðsáætlanir. Í 20. gr. laga nr. 94/1986 um kjarasamninga opinberra starfsmanna sé gefin heimild til að kalla til starfsmenn, sem séu í verkfalli, tímabundið til vinnu í þeim tilgangi að afstýra neyðarástandi.
„Munurinn á okkar starfsmönnum og öðrum starfsstéttum er sá að við þolum enga fundarsetu eða bið komi til neyðarástands,“ segir Jón Viðar. Enginn geti sagt fyrir um neyðarútköll en komi þau upp þurfi að bregðast við og það strax.
Slökkviliðsmenn hafa ekki farið í verkfall áður. „Verkfallsréttur slökkviliðsmanna er mjög vandmeðfarinn sem þeir hafa svo sannarlega virt. Slökkviliðsmenn hafa verið mjög meðvitaðir um að horfa á verkfall sem algjört neyðarúrræði,“ segir Jón Viðar. Nú sé mikilvægt að finna sameiginlega lausn á málum.
Bloggað um fréttina
-
Brjánn Guðjónsson Bráðabirðalög -
Jón Baldur L'Orange Leikið sér að eldinum -
Sigurður Jónsson Setjist niður í alvöru og semjið.
Innlent »
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Föstudagur, 25.5.2012
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
Svipaðar fréttir
- Fimmtudagur, 22. júlí 2010, Innlent Ganga ekki í störf slökkviliðsmanna
- Sunnudagur, 28. mars 2010, Innlent Sátt um Reykjavíkurflugvöll
- Fimmtudagur, 29. júlí 2010, Innlent Mikilvægt að tvöfalda göngin
- Fimmtudagur, 12. ágúst 2010, Innlent Yfirvinnubann hefst á morgun
- Föstudagur, 26. mars 2010, Innlent Enn óvíst með lokun Reykjavíkurflugvallar
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“





































