Ákvæði um vexti brutu gegn lögum

Neytendastofa hefur komist að þeirri niðurstöðu, að ákvæði í skilmálum bílasamnings við Lýsingu um vexti lánsins, bæði íslenska og erlenda hluta þess, brjóti gegn lögum um neytendalán og lögum um óréttmæta viðskiptahætti. 

Um var að ræða mál vegna ákvæða bílasamnings við Lýsingu sem var var bæði í íslenskum krónum og erlendri myntkörfu. Kvörtunin var í nokkrum liðum þar sem gerðar voru athugasemdir við  skilmála lánsins og framkvæmd við innheimtu þess vegna verðtryggingar og breytilegra vaxta af íslenskum hluta lánsins. Auk þess sem gerðar voru athugasemdir við skilmála og framkvæmd við innheimtu vegna vaxta og vaxtaálags á erlendum hluta lánsins.

Kvartandinn taldi samninginn ekki veita heimild til töku seðilgjalds og taldi ákvörðun um gengi þeirra erlendu gjaldmiðla, sem myntkarfan samanstendur af, ekki vera í samræmi við skilmála. Þá var kvartað yfir íþyngjandi skilmálum um uppsögn samningsins.

Neytendastofa taldi ákvæði samningsins um seðilgjald og uppsögn ekki í andstöðu við lög. Hins vegar taldi stofnunin ákvæði samningsins um vexti lánsins bryti gegn lögum.

Þá taldi stofnunin að Lýsing yrði að bera ábyrgð á því að félagið hafi fyrir mistök ekki greint frá því á samningi að íslenskur hluti lánsins væri verðtryggður.

Ákvörðun Neytendastofu

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert