Fundur stendur enn

Fulltrúar slökkviliðsmanna í húsi ríkissáttasemjara í dag.
Fulltrúar slökkviliðsmanna í húsi ríkissáttasemjara í dag. mbl.is/Ómar

Fundur, sem hófst klukkan 13:30 í kjaradeilu Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna og launanefndar sveitarfélaga í húsi ríkissáttasemjara stendur enn. Við jákvæðari tón hefur kveðið í viðræðunum í dag en að undanförnu. 

Slökkviliðsmenn hafa boðað til verkfalls á morgun frá klukkan 8 til 24 hafi ekki náðst samningar áður. 

Valdimar Leó Friðriksson, framkvæmdastjóri, Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna, sagði við mbl.is síðdegis, að verið væri að skoða ákveðnar hugmyndir sem ríkissáttasemjari hefði lagt fram þó svo fátt nýtt væri í stöðunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert