Samkomulag við Götusmiðjuna

Barnaverndarstofa og Götusmiðjan hafa náð samkomulagi.
Barnaverndarstofa og Götusmiðjan hafa náð samkomulagi. mbl.is/Golli

Barnaverndarstofa og Götusmiðjan hafa náð samkomulagi um slit á samningi vegna reksturs meðferðarheimilis Götusmiðjunnar að Brúarholti. Samkomulagið felur í sér að Götusmiðjan hættir rekstri meðferðarheimilisins.

Í frétt frá Barnaverndarstofu segir að Barnaverndarstofa og Götusmiðjan séu sammála um að þrátt fyrir að Götusmiðjan hafi unnið gott starf í þágu barna og ungmenna á undanförnum árum sé tímabært að ljúka samstarfi aðila. „Samkomulagið er gert í góðri sátt og eru Barnaverndarstofa og Götusmiðjan sammála um að það feli í sér farsælar lyktir málsins fyrir alla aðila.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert