Ætla að stöðva flugið

Slökkviliðsmenn og fulltrúar launanefndar sveitarfélaga settust á samningafund klukkan 12 …
Slökkviliðsmenn og fulltrúar launanefndar sveitarfélaga settust á samningafund klukkan 12 í dag. Eggert Jóhannesson

Slökkviliðsmenn af höfuðborgarsvæðinu eru lagðir af stað til Húsavíkur, en þeir ætla sér að koma í veg fyrir að flug, sem fara átti um Akureyrarflugvöll, verði flutt til Húsavíkur meðan á verkfalli þeirra stendur.

Landssamband slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna telur að ákvörðun um að flytja flug frá Akureyri til Húsavíkur sé skýrt verkfallsbrot.  Slökkviliðsmenn af höfuðborgarsvæðinu og slökkviliðsmenn frá Akureyri ætla að koma í veg fyrir að hægt verði að fljúga til Húsavíkur meðan á verkfalli stendur.

Samninganefndir deiluaðila hafa setið á fundi hjá ríkissáttasemjara frá því kl. 12 á hádegi. Fundi var ekki lokið um miðnætti. Verkfall hefst kl. 8 hafi samningar ekki tekist fyrir þann tíma.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert