Nýr framkvæmdastjóri Fríhafnarinnar

Fríhöfnin á Keflavíkurflugvelli.
Fríhöfnin á Keflavíkurflugvelli.

Ásta Dís Óladóttir  mun á næstu dögum taka við starfi framkvæmdastjóra Fríhafnarinnar á Keflavíkurflugvelli.  Ásta Dís er með meistaragráðu í stjórnun og stefnumótun og doktorspróf í alþjóðlegum viðskiptum frá Viðskiptaháskólanum í Kaupmannahöfn.

Fram kemur í tilkynningu frá Isavia, að Ásta Dís hafi undanfarin ár starfað við Háskólann á Bifröst sem dósent í viðskiptafræði, forstöðumaður rannsóknaseturs um alþjóðleg viðskipti og forseti viðskiptadeildar, en hún var fyrst kvenna til að gegna stöðu deildarforseta í viðskiptadeild háskóla hér á landi.

Hún var áður aðjúnkt við Viðskiptadeild Háskóla Íslands ásamt því sem hún gegndi stöðu markaðs- og kynningarstjóra deildarinnar í um 4 ár.  Þá hefur hún sinnt stundakennslu við Háskólann í Reykjavík og hefur starfað undanfarin ár við Viðskiptaháskólann í Kaupmannahöfn.

Ásta Dís Hún hefur á undanförnum árum setið í stjórnum fjölmargra fyrirtækja hér á landi sem og erlendis.

Hún er í sambúð með Jakobi Bjarnasyni og á tvær dætur.
 
 


mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert