205 fasteignar seldar nauðungarsölu

mbl.is

Í lok ágúst  höfðu 205 fasteignir verið seldar nauðungarsölu hjá sýslumanninum í Reykjavík á árinu. Í janúar 6, febrúar 28, mars 25, apríl 3, maí 2, júní 63, júlí 44 og í ágúst 34.

Skráðar nauðungarsölubeiðnir vegna fasteigna voru á sama tíma 1.195 talsins samkvæmt vef sýslumannsins í Reykjavík.

Árið 2009 voru 207 fasteignir seldar nauðungarsölu hjá sýslumanninum í Reykjavík. Í janúar 6, febrúar 29, mars 37, apríl 20, maí 15, júní 11, júlí 9, ágúst 1, september 38, október 16, nóvember 23 og tvær í desember.

Skráðar nauðungarsölubeiðnir vegna fasteigna voru árið 2009 2.504. Í janúar 216, febrúar 156, mars 187, apríl 134, maí 207, júní 225, júlí 112, ágúst 140, september 278, október 384, nóvember 203 og í desember 262.

196 bifreiðar seldar nauðungarsölu

Í lok ágúst 2010 höfðu 196 bifreiðar verið seldar nauðungarsölu hjá sýslumanninum í Reykjavík á árinu. Í febrúar 60, mars 54 og í júní 82.

Skráðar nauðungarsölubeiðnir vegna bifreiða voru á sama tíma 580.

Árið 2009 var 441 bifreið seld nauðungarsölu hjá sýslumanninum í Reykjavík.

1.068 nauðungarsölubeiðnir vegna bifreiða voru skráðar hjá embættinu árið 2009.  

Alls var 491 bifreið seld á uppboði hjá sýslumanninum í Reykjavík árið 2008. Annað selt lausafé var 30 stk. Skráðar nauðungarsölubeiðnir vegna bifreiða voru 2.019 allt árið og beiðnir vegna annars lausafjár voru 130.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert