Innlent
| mbl
| 16.9.2010
| 21:45
| Uppfært
17.9.2010
9:06
Askan bætir uppskeruna
Askan úr Eyjafjallajökli virðist hafa góð áhrif á uppskeru korns undir Eyjafjöllum og víðar í Rangárþingi. Þórarinn Ólafsson, kornbóndi í Drangshlíð, segir að uppskera af akri heima við bæ sé ótrúlega góð, þótt sáð hafi verið seint.
Sáð var í akurinn í Drangshlíð þriðja árið í röð. Venjulega fer að draga úr uppskeru, á þriðja ári. Svo er ekki nú, lengi var mikið grænt í akrinum og útlit er nú fyrir uppskeru eins og á fyrsta ári eftir hvíld akurs.
Íslenskir bændur telja gott þegar 19-20 korn eru í axinu. „Nú erum við að sjá 26-28 korn í axi á þessum akri, en að vísu minna í sendnum jarðvegi. Ég skoðaði akra í Danmörku og Þýskalandi fyrir tveimur árum. Þar var algengt að finna 23 kort í axinu“, segir Þórarinn.
Sumarið hefur verið hlýtt og það hjálpar til við kornvöxtinn. Þórarinn vill þó ekki líta framhjá öskunni úr Eyjafjallajökli sem féll á þessum slóðum í vor. Hann telur greinilegt að hún skapi góð skilyrði fyrir plönturnar.
Þórarinn er þessa dagana að þreskja fyrir svínabændur í Laxárdal, á ökrum þeirra í Gunnarsholti. Hann segir að ágætis uppskera sé þar eins og annars staðar.
Rok og rigningar hafa fellt kornið sums staðar. Þórarinn segir að erfiðara verði að þreskja slíka akra en það ætti að hafast. Hann segir of snemmt að segja til um uppskeru, enn geti ýmislegt komið upp á og uppskeran ekki komin í hús. Ef næsta vika verður góð, eins og útlit er fyrir næstu daga, komist menn töluvert á veg með uppskerustörf.
Búa sig undir uppskeruhátíð
Góð uppskera er hjá kornbændum í Hrunamannahreppi, að sögn Sigurðar Ágústssonar bóndi sem rekur þurrkstöð í Birtingaholti. Hann telur að uppskeran geti verið um 4 tonn af þurru korni af hverjum hektara, en þó aðeins misjöfn á milli akra.
Kornið er meira þroskað en á sama tíma undanfarin ár. Tíðin er með eindæmum góð, eins og í júlí. „Það frystir ekki einu sinni á nóttunni þótt það séu norðurljós,“ segir hann.
Ekki varð mikið tjón á kornökrum í uppsveitum Árnessýslu í rokinu í vikunni, einhver rýrnun í sumum tegundum þar sem stönglarnir brotnuðu.
Uppskerustörf eru ekki hálfnuð hjá kornbændum í Hrunamannahreppi. Þeir eru þó byrjaðir að búa sig undir uppskeruhátíðina Matarkistuna sem haldin verður á Flúðum um helgina.

© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin
Innlent »
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
Svipaðar fréttir
- Miðvikudagur, 12. maí 2010, Innlent Aska hefur jákvæð áhrif á kornið
- Miðvikudagur, 27. október 2010, Innlent Hátt í 20 þúsund tonn í kornhlöðum
- Mánudagur, 27. júní 2011, Innlent Vonast eftir hálfri uppskeru af olíufræi í haust
- Fimmtudagur, 11. ágúst 2011, Innlent „Þetta lítur rosalega vel út“
- Mánudagur, 3. maí 2010, Innlent Korn spjarar sig vel í ösku
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
Framstuðari á PT. Crushier 2005-8
Til sölu splunkunýr framstuðari. Fullt verð hér 135 þús.(Uppgefið Bíljöfur).
Ég...
TÖLVUÞJÓNUSTA
Tölvuþjónusta Alhliða tölvuviðgerðir; Stýrikerfi...
M. BENZ C 240
M. Benz C 240 4matic Árg. 2003, ekinn 175 þ. km, bensín, sj...
Bambusstólar
Til sölu 2 mjög vandaðir og góðir bambusstólar, Lækkað verð 15000 kr. stk.
Uppl...