Umhverfisstofnun skiptir út bílum

Prius í borgarumferðinni.
Prius í borgarumferðinni. mbl.is/Ragnar Axelsson

Umhverfisstofnun hefur skipt út tveimur dísilbílum og keypt í staðinn tvinnbíl og bensínbíl sem framleiðir rafmagn við keyrslu. Þá er stofnunin með rafmagnsvespu í Mývatnssveit og tvö reiðhjól í Reykjavík.

Umhverfisstofnun hyggst vera leiðandi aðili í vistvænum innkaupum ríkisfyrirtækja, að því er fram kemur á vef stofnunarinnar. Hún hefur keypt bifreiðar sem hafa leyst af hólmi tvær Toyota Hilux disilbifreiðar. Með þessum kaupum reynir Umhverfisstofnun að draga úr neikvæðum áhrifum vegna samgangna stofnunarinnar.

Bílarnir sem um ræðir eru Toyota Prius tvinnbíll og Volkswagen Passat Variant Ecofuel1. Prius bílinn er með bensínvél en framleiðir rafmagn við keyrslu. Hann verður notaður af starfsmönnum Snæfellsjökulþjóðgarðs. Passat bílinn er með metan/bensín vél og verður aðallega notaður á höfuðborgarsvæðinu og nágrenni þess, enda eru hvergi metanáfyllingarstöðvar annars staðar á landinu.

Bílarnir sem keyptir voru uppfylla allar þær ströngustu kröfur sem gerðar eru til bifreiða á Evrópusambandssvæðinu nú á dögum, segir á vefnum

Umhverfisstofnun á einnig tvö reiðhjól sem starfsmenn nota til þess að fara á fundi eða sinna öðrum erindum í nágrenni við vinnustaðinn. Á starfsstöð Umhverfisstofnunar við Mývatn var bifreið skipt úr fyrir rafmagnsvespu til þess að ferðast á milli staða í sveitinni.

Vefur Umhverfisstofnunar.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert